Page 1 of 2

e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Fri 18. Oct 2013 21:19
by magnússon84
Sælir, er með e46 og var að skipta um bremsuklossa að aftan þá kemur í ljós að hann bremsar bara EKKI neitt að aftan og er eins og það sé loft á þeim, og búinn að lofttæma, getur verið að höfuðdælan sé ónýt??

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Fri 18. Oct 2013 22:10
by rockstone
magnússon84 wrote:Sælir, er með e46 og var að skipta um bremsuklossa að aftan þá kemur í ljós að hann bremsar bara EKKI neitt að aftan og er eins og það sé loft á þeim, og búinn að lofttæma, getur verið að höfuðdælan sé ónýt??


1. Gat á bremsuröri?

2. þú ert ekki búinn að loftæma nóg, stundum getur það verið leiðinlegt hvað það tekur langan tíma.

3. Fastir stimplar í bremsudælum?

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Fri 18. Oct 2013 22:42
by magnússon84
1. Gat á bremsuröri?

2. þú ert ekki búinn að loftæma nóg, stundum getur það verið leiðinlegt hvað það tekur langan tíma.

3. Fastir stimplar í bremsudælum?


Búinn að kanna leka og sé engan, get prufað að lofttæma betur og það eru ekki fastar dælur

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sat 19. Oct 2013 11:07
by Axel Jóhann
Afhverju varstu að lofttæma til þess að byrja með?

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sat 19. Oct 2013 12:44
by magnússon84
Axel Jóhann wrote:Afhverju varstu að lofttæma til þess að byrja með?


TIL AÐ ÚTILOKA ÞAÐ AÐ ÞAÐ VÆRI LOFT Á ÞEIM SNILLI!!

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sat 19. Oct 2013 12:54
by IvanAnders
Pointið hjá Axeli Jóhanni er, að það á ekki að geta komist loft á bremsur, við einföld klossaskipti.

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sat 19. Oct 2013 14:12
by Angelic0-
magnússon84 wrote:
Axel Jóhann wrote:Afhverju varstu að lofttæma til þess að byrja með?


TIL AÐ ÚTILOKA ÞAÐ AÐ ÞAÐ VÆRI LOFT Á ÞEIM SNILLI!!


Hold your horses....

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sat 19. Oct 2013 14:31
by Axel Jóhann
Allt í lagi þá, góða skemmtun við bilanaleit. :thup:

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sat 19. Oct 2013 20:25
by magnússon84
Axel Jóhann wrote:Allt í lagi þá, góða skemmtun við bilanaleit. :thup:



Málið er að ég keypti bíl fyrir viku og sá það á diskunum að aftan að hann væri að bremsa eitthvað lítið svo ég keypti klossa og ætlaði að ath hvort það væri ekki bara fastir stimplar eða eitthvað og þá eru klossarnir öðrumeginn búnir og hinir valla hálfnaðir svo ég var bara að vera viss um að það væri ekki loft á þeim, svo þegar maður stígur á bremsuna núna með nýja klossa er enþá eins og það sé loft á þeim og hann bremsar ekki neitt að aftan

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sun 20. Oct 2013 00:11
by Twincam
Og eru stimplarnir lausir og liðugir og færslurnar renna fínt?

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sun 20. Oct 2013 01:24
by GunniT
Búin að lofttæma að framan líka?

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sun 20. Oct 2013 05:08
by magnússon84
Twincam wrote:Og eru stimplarnir lausir og liðugir og færslurnar renna fínt?

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sun 20. Oct 2013 05:10
by magnússon84
Twincam wrote:Og eru stimplarnir lausir og liðugir og færslurnar renna fínt?


Bæði í lagi

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Sun 20. Oct 2013 05:12
by magnússon84
GunniT wrote:Búin að lofttæma að framan líka?



Neibb en hann bremsar vel að framan abs kikkar inn og alles!

Re: e46 bremsu vandamál!

PostPosted: Mon 21. Oct 2013 09:45
by jon mar
Er ekki bara búið að reka hann hressilega niður einhverntíma og bremsurör marin saman?

Það hefur vissulega sést áður :)