Page 1 of 1

ABS og Traction control ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 20. Sep 2013 14:58
by Mazi!
ég og konan fengum okkur e36 318ia touring 1997 um daginn og það loga alltaf ABS og Traction control ljós í mælaborði

dettur einhverjum í hug hvað sé bilað sem veldur þessum tvem ljósum?

Re: ABS og Traction control ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 20. Sep 2013 15:32
by reynirdavids
ABS skynjari eða hjólalega?

Re: ABS og Traction control ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 20. Sep 2013 16:14
by bimmer
Traction control á 318????

En já... ABS skynjari. :lol:

Re: ABS og Traction control ljós í mælaborði

PostPosted: Fri 20. Sep 2013 19:23
by Helgason
Lestu af bílnum og athugaðu hvort að skynjararnir skili svipuðum útkomum þegar þú ert á ferð.
Ég skipti um báða skynjara að framan, en svo kom í ljós að það þurfti að skipta um hjólalegu öðru megin að framan, þá fóru ljósin og þetta virkar smurt.

Skynjarinn við þá hjólalegu skilaði kolröngum niðurstöðum, fór upp í óendanlega mikinn hraða og svo niður í engann hraða til skiptis þegar ég var á ferð.