Page 1 of 1
valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Mon 16. Sep 2013 19:29
by zandnina
langaði að ath hvað menn segja um þetta valvetronic system er með 2004 model bmw e46 með n42 mótor það virðist vera komið slit í cam ásana sem gerir það að verkum að vélin gengur ylla og hristist eða víbrar bíllinn er ekki ekinn nema 68.000 km er þetta virkilega þau gæði sem bmw bíður upp á í dag vil taka fram að svona viðgerð kostar á verkstæði 3-5 hundruð þúsund
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Mon 16. Sep 2013 21:52
by ömmudriver
Þetta er fyrsta gerðin af Valvetronic kerfinu og það virkar mjög vel á meðan það er í lagi.
Eftir að hafa ráðfært við mig vanan BMW viðgerðarmann sem sýndi mér hvernig þetta kerfi virkar nákvæmlega og útskýrði líka fyrir mér afhverju það væri að koma slit í það í lítið eknum mótorum. En málið er ef að bíllinn er mikið notaður í stutta túra þar sem vélin varla nær vinnsluhita og bíllinn fær líka standa í góðan tíma á milli ferða þá fellur á ásana(tæring/ryðmyndum) og þegar sett er næst í gang rifnar þessi tæring/ryðmyndun upp og slitna ásarnir því hraðar en eðlilegt þykir. Einnig slitna ásarnir hratt ef fólk er að trassa olíuskipti eða keyrir lengur á olíunni en á að gera og/eða notar ranga/lélega mótorolíu á mótorinn. Hann tók líka fram að ef farið væri með bílinn í olíuskipti þegar hann/BMW fer fram á það og notað er rétta mótorolíu þá slitna ásarnir eðlilega og sama er að segja um bíla sem eru notaðir mikið og vélin fær nær vinnsluhita við hverja notkun og notað er rétta óliu á mótorinn og farið í olíuskipti á réttum tíma þá slitna ásarnir eðlilega.
Ég tek það fram að ég veit um tvo N42 mótora sem hafa fallið í valinn út af þessu Valvetronic dóti

Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Mon 16. Sep 2013 22:25
by Danni
Það sem Arnar sagði. Og 2004 árgerð af bíl ekinn aðeins 64þús km fellur akkurat undir þessa tvo flokka: stuttir túrar og standa lengi.
Og þegar þú talar um þetta um gæðin sem BMW býður uppá í dag þá verðurðu að átta þig á því að bíllinn er 9 ára gamall og þessi vélartýpa ennþá eldri.
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Tue 17. Sep 2013 12:45
by íbbi_
maður þarf nú að kafa ansi djúpt í bmw áhugann til að samþykja að þetta sé í lagi. tala nú ekki um frá ekki bara premium brand, heldur framleiðanda sem á að vera einhver besti vélaframleiðandi í heimi.
þetta er skitinn 2.0l rella. sem að ætti nú ekki að vera mikið mál, það eru að brotna tímakeðjusleðar í þessu. þær míga olíu út um öll göt og ryðgandi knastásar. kannski í árdaga bílsins, en ekki þýskan merkjavörubíl frá 2004
það er svo annað að ef maður færi alveg eftir leiðbeiningunum þá væri maður nú fljótur að stúta mótornum, þar sem það er mobil1 longlife olía á þeim á þeim, en svo er manni sagt að tappa henni af á 5þús km fresti. sem er ekki í neinu samhengi við það sem er gefið upp.
svo leka þeir svo mikið sumir að eftir 5þús km+ er raunverulega búið að skipta allri olíuni út sem var sett á hann,
ég reyndar sjálfur hef ekki lent í neinu með minn. jú hann dropar með ventlaloks pakninguni. en annars hefur mótorinn bara verið til friðs og bíllinn allur
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Tue 17. Sep 2013 13:31
by slapi
Þetta er smíðað í bretlandi þessir mótorar.
Einn góður maður sagði einu sinni "BMW hafa ekki getað búið til 4cyl bensínvél til bjarga lífi sínu síðan M10"
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Tue 17. Sep 2013 14:29
by Eggert
Væri ekki hreinlega ódýrara að kaupa M52TU mótor (held það séu tveir B20 til sölu hérna á spjallinu) og setja hann í, í staðinn fyrir að standa í þessu og halda þessari rellu áfram gangandi... sem gæti svo verið aftur ónýt í 150þkm.
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Thu 19. Sep 2013 17:48
by zandnina
Gaman að sjá að menn eru til í að segja sitt álit hér . mig langar nú mest að vera sammála þeim sem sagði að bmw vélarnar ættu að vera með bestu vélum sem framleiddar eru og að maður þurfi ekki að taka rúnt á selfoss þegar maður er á leið í Byko bara til að koma vélinni í einhvern vinnsluhita .
Ég hélt satt best að segja að lenda í svona alvarlegri bilun á bmw ekinn ekki meira en þetta væri ekki inn í myndinni
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Thu 19. Sep 2013 17:52
by zandnina
hvaða mótorar eru þessir m52tu
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Thu 19. Sep 2013 18:20
by sosupabbi
zandnina wrote:hvaða mótorar eru þessir m52tu
6 cyl 320+ = engin vandamal
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Thu 19. Sep 2013 20:41
by ömmudriver
íbbi_ wrote:maður þarf nú að kafa ansi djúpt í bmw áhugann til að samþykja að þetta sé í lagi. tala nú ekki um frá ekki bara premium brand, heldur framleiðanda sem á að vera einhver besti vélaframleiðandi í heimi.
Ég er alveg sammála þér enda hef ég óbeit á þessari vélarfjölskyldu og mæli ekki með að kaupa bíl með N42 undir húddinu.
slapi wrote:Þetta er smíðað í bretlandi þessir mótorar.
Einn góður maður sagði einu sinni "BMW hafa ekki getað búið til 4cyl bensínvél til bjarga lífi sínu síðan M10"
Helvíti góður þessi

Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Sun 22. Sep 2013 18:16
by Helgason
zandnina wrote:og að maður þurfi ekki að taka rúnt á selfoss þegar maður er á leið í Byko bara til að koma vélinni í einhvern vinnsluhita .
Ég hló

Rétt það.
En þegar ég var að velja mér bíl talaði ég við þá sem málið varðaði og mér var sérstaklega bent á að forðast E46 með þessa mótora eins og heitann eldinn.
Re: valvetronic bmw e46 með n42 motor

Posted:
Sun 22. Sep 2013 21:26
by íbbi_
ég segi stundum að ég var heppin að vita ekki af þessu öllu, og þ.a.l geta notað þessa bíla vandræðalaust
