Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 04:58
by hakonjarlk
Ég er með 1998 e46 328i, ég er að verða brjálaður á drasli sem er verið að spila á helstu útvarpsstöðvum landsins og er í veseni vegna þess að ég er einugis með kasettu spilara í bíllnum svo ég get ekki spilað mína tónlist.
Ég er að spá í aux tengi og er að reyna að afla mér sem mestum upplýsingum um þetta svona áður en maður fer útí þetta,
svo endilega deildu með mér reynslu þinni af þessu.
Hákon
Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 10:42
by Garðar Rafns
Ef það er "MENU" takki á útvarpinu, getur þú farið í NESRADIO og þeir sett inn eitthvert box og þá eru klár fyrir CD diska magasín, Þetta var gert fyrir mig og kostnaðurinn var eitthvað um 25 kallinn, þeir tóku því fram að verðið á boxinu hafi verið gamalt, svo var verslað 6 diska magasín á Ebay á 90 evrur.
Virkar fínt.
Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 13:04
by Joibs
getur líka fengið aux tenki sem fer í gegnum kasetuna, minnir að þetta sé til í m.a. elko

Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 18:34
by Haffer
Joibs wrote:getur líka fengið aux tenki sem fer í gegnum kasetuna, minnir að þetta sé til í m.a. elko

snildar tæki! fekk mitt í n1 bílanaust kostaði ca. 1500 kall minnir mig

Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 18:58
by Angelic0-
Haffer wrote:Joibs wrote:getur líka fengið aux tenki sem fer í gegnum kasetuna, minnir að þetta sé til í m.a. elko

snildar tæki! fekk mitt í n1 bílanaust kostaði ca. 1500 kall minnir mig

Og er fooooorljótt...
Mikið meira clean að víra inn jack gaur á OEM stuffið, þá kemur AUX á skjáinn og þú spilar tónlist af t.d. iPad/iPod/iPhone eða Android símanum þínum... þessvegna fartölvunni þinni...
Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 21:31
by ///MR HUNG
Fm 91,9 og málið er dautt

Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 21:45
by SteiniDJ
Þetta Flashback er vonbrigði, eins og Flass...

Nú fær maður að heyra sömu leiðinlegu lögin og maður heyrði fyrir fimm árum. Jibbí.

Erfitt að eiga kærustu sem hlustar bara á Flass og FM.

Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 21:49
by ///MR HUNG
Segir mér svo hugur að þú sért með rás1 í blasti dags daglega

Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Sun 24. Mar 2013 21:52
by Andri Fannar
Angelic0- wrote:Haffer wrote:Joibs wrote:getur líka fengið aux tenki sem fer í gegnum kasetuna, minnir að þetta sé til í m.a. elko

snildar tæki! fekk mitt í n1 bílanaust kostaði ca. 1500 kall minnir mig

Og er fooooorljótt...
Mikið meira clean að víra inn jack gaur á OEM stuffið, þá kemur AUX á skjáinn og þú spilar tónlist af t.d. iPad/iPod/iPhone eða Android símanum þínum... þessvegna fartölvunni þinni...
Ekki þessum gömlu tækjum held ég, ég reyndi þetta mikið. Endaði á að víra inn jack í staðinn fyrir magasínið aftan í tækið. Þannig í raun heldur tækið að það sé að spila magasínið þegar hljóðinputtið er gegnum aux. Er með Professional tæki með Mode takkanum, 2002.
Re: Vantar upplýsingar um aux tengi í e46

Posted:
Mon 25. Mar 2013 16:31
by Joibs
olinn wrote:SteiniDJ wrote:Þetta Flashback er vonbrigði, eins og Flass...

Nú fær maður að heyra sömu leiðinlegu lögin og maður heyrði fyrir fimm árum. Jibbí.

Erfitt að eiga kærustu sem hlustar bara á Flass og FM.

AMEN

síðan á víst að koma önnur útvarpsstöð frá flass sem verður eithvað í líkindum við flass á sínum fyrstu mánuðum
bara fínt að hafa útvarpstöðvar sem eru skiftar eftir típum á tónlist ef maður fær leið á safninu sínu í smástund
