Page 1 of 1
Rautt aðvörunarljós á E30

Posted:
Mon 17. May 2004 16:53
by WRX_STI
Hvað þýðir ljósið sem er beint fyrir neðan 20 á eyðslumælinum

þetta er svona hringur með sex punkta í kringum sig.
Þetta sést vel á bílnum hans Stefáns


Posted:
Mon 17. May 2004 16:57
by Bjarkih
Ef mig mismynnir ekki þá er þetta eitthvað viðkomandi bremsunum.

Posted:
Mon 17. May 2004 16:57
by GK
er þetta ekki aðvörunarljós um bremsurnar þar að segja þegar klossarnir séu orðnir tæpir


Posted:
Mon 17. May 2004 17:13
by arnib
Það liggur vír í gegnum bremsuklossana öðrum megin að framan og öðrum megin að aftan.
Þegar klossinn er búinn þá slitnar vírinn og ljósið kviknar.
Ef að ljósið blikkar þá eru vírarnir slappir einhversstaðar.

Posted:
Mon 17. May 2004 22:09
by WRX_STI
Takk fyrir !! Ég redda þessu á morgun


Posted:
Tue 18. May 2004 00:51
by arnib
Passaðu þegar þú kaupir klossana (sem ég geri ráð fyrir að þú sért að fara að gera) að fá líka skynjarann

(eða vírinn..

)
Ég veit að hann er seldur sér í Bílanaust, en einhvernveginn minnir mig að hann fylgi með í B&L.

Posted:
Tue 18. May 2004 00:54
by Haffi
ÞREIFARI


Posted:
Tue 18. May 2004 09:56
by Jss
arnib wrote:Passaðu þegar þú kaupir klossana (sem ég geri ráð fyrir að þú sért að fara að gera) að fá líka skynjarann

(eða vírinn..

)
Ég veit að hann er seldur sér í Bílanaust, en einhvernveginn minnir mig að hann fylgi með í B&L.
Einhverra hluta vegna minnir mig að hann fylgi ekki með í B&L en við minnum nú yfirleitt á skynjarann.


Posted:
Tue 18. May 2004 20:10
by WRX_STI
Ég á ekki bimmann heldur vinur minn, við vorum bara að spá hvaða ljós þetta væri, hann fékk ekki manualinn með bílnum. Það blikkar einmitt semsagt vírinn er að fara. Vitið þið hvað klossar og þreifarar kosta sirka allann hringinn ?
Og eitt í viðbót, þegar maður slær af (þegar bíllinn er ekki undir álagi) þá heyrist svona lágt "´vvvvvvúúúúúú" hljóð. Ég hef ekki setið í mörgum E30 bimmum þannig ég veit ekki hvort þetta hljóð sé eðlilegt. Gætu þetta veri legur í kassanum eða drifinu orðnar slappar ?? þetta heyrist líka þegar maður er að skipta um gír eða þegar er kúplað frá. Þetta heyrist mjög lágt en hættir strax og honum er gefið inn... Bara betra að vita ef þetta er óeðlilegt. bíllinn er ekki keyrður mikið eða 130 þús og hann er beinskiptur (316i) 89 árgerð.

Posted:
Wed 19. May 2004 00:12
by gstuning
Kemur hljóðið bara þegar er sleppt gjöfinni
aldrei annars
Þá myndi ég kenna kassanum um frekar en hjólabúnaði,, er búið að fara illa með bílinn

Posted:
Wed 19. May 2004 12:52
by WRX_STI
jebb, svoldið skrítið látt þungt væl.. eða þannig. hverfur allveig þegar bíllinn er á gjöf, held að það sé ekki búið að nauðga honum mikið. það átti gamall sjómaður bílinn mest allan tímann
Þetta skiftir kannski ekki máli, þá fer kassinn bara

En það er bara skemmtilegra að vita hvað þetta er

Posted:
Wed 19. May 2004 12:58
by gstuning
Ég gleymdi að spyrja
er þetta með kúplinguna uppi þannig að kassinn er undir áhrifum frá vélinni og drifinu

Posted:
Fri 21. May 2004 12:25
by WRX_STI
Þetta heirirst best þegar er verið að cruiza á svona 60-80 og svo er bensíngjöfinni slept (háværst þá) En þetta heyrist líka þegar er verið að kúpla á ferð ( minni hjóð)

Posted:
Fri 21. May 2004 13:02
by gstuning
Þetta hljómar eins og eitthvað utan gírkassans
hjólalegur,, drif,, svinghjól eitthvað af þessu

Posted:
Sat 22. May 2004 16:40
by WRX_STI
við skoðuðum bremsurnar, og borðarnir eru frekar lítið slitnir þannig að þar er örugglega bara eitthvað sambandsleysi í þreifaranum. En sambandi við vælið úr gírkassanum/eða eitthverju, þá ætlum við bara bíða og sjá hvað gerist. lögum það þá bara ef það bilar.
En takk fyrir hjálpina
