Krómhúðun!

Posted:
Mon 10. May 2004 14:53
by bebecar
Til upplýsinga sendi ég þetta.
Stálsmíði Magnúsar Proppé sf í Kópavogi, Hafnarbraut 11 krómhúðar parta í bíla. Þeir geta krómhúða flest allt NEMA felgur!
Típískt er að krómhúðun t.d. á stuðara kosti 10-30 þúsund.
Það er gott að vita af þessu fyrir okkur sem eru með eitthvað króm á bílnunum okkar.

Posted:
Mon 10. May 2004 20:04
by Kristjan
Ég var að pæla í því að krómhúða fjarstýringarnar mínar. Er það hægt.


Posted:
Tue 11. May 2004 08:25
by bebecar
Kristjan wrote:Ég var að pæla í því að krómhúða fjarstýringarnar mínar. Er það hægt.

Ef það er hægt að tengja rafskaut í þær

Þær eru nú væntanlega úr plasti þannig að svarið er líklega nei.

Posted:
Tue 11. May 2004 14:04
by Kristjan
Ég er að reyna húða þær með einhverju sem myndi gefa þeim svona málm lúkk.. Er nefnilega með svoleiðis þemu í pleisinu mínu.

Posted:
Tue 11. May 2004 20:22
by O.Johnson
Hvernig gera þeir svona krómhúð ?
Og hvernig endist þetta ?

Posted:
Wed 12. May 2004 08:38
by bebecar
O.Johnson wrote:Hvernig gera þeir svona krómhúð ?
Og hvernig endist þetta ?
Þetta er einhver raftækni og fat eitthvað í þeim dúr, ég held nú að vönduð krómhúð endist MJÖG vel!

Posted:
Wed 12. May 2004 08:56
by Twincam
hmm.. afhverju að króma þegar maður getur "Shadowline-að"?


Posted:
Wed 12. May 2004 10:55
by gstuning
Twincam wrote:hmm.. afhverju að króma þegar maður getur "Shadowline-að"?

TRUE
Þótt að sumt dót sé fínt krómað þá á að vera shadowline utan á bílnum

Posted:
Wed 12. May 2004 16:52
by joipalli
Einnig er betra ef þú ert búinn að vinna af alla málingu eða áferð. Þá getur þú fengið betra tilboð frá honum.
