Page 1 of 1

Er hægt að láta negla nokkurra mánaða gömul dekk?

PostPosted: Sun 18. Nov 2012 15:39
by Axel Jóhann
Ég keypti splúnkuný neglanleg dekk í janúar, ég lét ekki negla þau enn núna er ég búinn að keyra nokkur þúsund kílómetra á þeim enn þau eru ennþá eins og ný, get ég ekki alveg látið negla dekkin?



Og annað, er einhver sem á svona naglabyssu til að lána/leigja mér?

Re: Er hægt að láta negla nokkurra mánaða gömul dekk?

PostPosted: Sun 18. Nov 2012 19:31
by Jökull
Ég hef allavega heyrt að það sé ekki hægt því að götin eru orðin full af tjöru og sandi :? en hringdu bara í dekkjaverkstæði og spurðu :wink:

Re: Er hægt að láta negla nokkurra mánaða gömul dekk?

PostPosted: Sun 18. Nov 2012 22:29
by odinn88
þegar ég var að vinna hjá sólningu vildu þeir ekki taka viku gömul dekk og láta negla allt of mikil vinna að þrífa úr götunum