Page 1 of 1

ZF 5HP19

PostPosted: Fri 16. Nov 2012 17:17
by Eggert
Sælir,

Er einhver hérna sem hefur reynslu af svona sjálfskiptingu og rifið þetta í sundur og gert við?

Vandamálið er að hún varð olíulaus og mig grunar fóðringu milli TC (Torque converter/vökvatúrbínu) og sjálfskiptingar, mig langaði bara til að sýna þetta einhverjum sem hefur reynslu af þessu og gæti gefið eitthvað innlegg...

Myndir eins og þetta kemur í sundur: (fóðringin er pikkföst, takið eftir hvað stálið er rifið)

Image

Image


Einnig megið þið láta mig vita ef þið vitið um einhvern sem á svona skiptingu í slátri þar sem mig vantar líklegast olíudæluna.

Re: ZF 5HP19

PostPosted: Sun 18. Nov 2012 00:05
by slapi
Meðaðvið þetta er hún örugglega full af svarfi og þá þarf að opna þær.

Re: ZF 5HP19

PostPosted: Sun 18. Nov 2012 07:02
by Eggert
slapi wrote:Meðaðvið þetta er hún örugglega full af svarfi og þá þarf að opna þær.


Er það þá ekki skrýtið að sú litla olía sem eftir var á skiptingunni var gjörsamlega svarflaus? Það var ekkert svarf að finna neinstaðar.

Re: ZF 5HP19

PostPosted: Sun 18. Nov 2012 08:50
by slapi
Ertu búinn að taka pönnuna undan?
Það væri mjög skrítið að það væri ekker svarf því það sem rifnar upp á stútnum sem endar með því að fóðringin festist við hefur enga aðra leið en inn í skiptingu. Ég myndi allaveganna kippa ventlaboxinu undan og kippa nokkrum ventlum úr til að sjá ástandið á þeim því svarfið killar ventlaboxunum fyrst. Síðan myndi ég halda að það þyrfti að laga stútinn á convertornum.

Re: ZF 5HP19

PostPosted: Mon 19. Nov 2012 11:46
by Eggert
Já, stúturinn á converternum þarf viðgerð.

Ég er búinn að rífa alla skiptinguna í sundur, allt úr henni og ventlaboxið í frumeindir og það eru engir ventlar fastir. Ekkert svarf... svo það væri skrýtið ef converterinn væri fullur af svarfi, ekki satt?

Seglarnir í pönnunni voru nánast hreinir, amk ekkert svarf... bara örlítið leðjukennd drulla.