Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Tue 13. Nov 2012 13:19
by Jón Ragnar
Þetta hefur örugglega verið rætt milljón sinnum hérna
Lenti í því síðasta vetur þegar ég fór inn með bílana að það kom smá raki á allt inni í bíl sem endaði með myglu (sem auðvitað þurrkast út og ekkert mál með tusku)
Hvernig kemst ég hjá þessu? Dagblað á gólfin? setti hann inn í fyrra milli jóla og nýárs meðan allt var á kafi í snjó
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Tue 13. Nov 2012 13:34
by Kjallin
Lang best að reyna að redda sér stórum pokum af silica gel. Þekki það ekki hvort einhver sé að selja þetta hérna heima samt. Þetta er notað í stórum einingum þegar er verið að geyma flugvélar í lengri tíma til dæmis.
http://www.widgetco.com/500g-silica-gel ... acks-tyvek
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Tue 13. Nov 2012 14:26
by Jón Ragnar
Kjallin wrote:Lang best að reyna að redda sér stórum pokum af silica gel. Þekki það ekki hvort einhver sé að selja þetta hérna heima samt. Þetta er notað í stórum einingum þegar er verið að geyma flugvélar í lengri tíma til dæmis.
http://www.widgetco.com/500g-silica-gel ... acks-tyvek
Var ekki búið að banna þetta?

Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Wed 14. Nov 2012 11:28
by Jón Ragnar
Bíllinn er kominn inn, Þurr og fínn

Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Wed 14. Nov 2012 19:34
by -Siggi-
Ertu ekki með rúðurnar niðri eða allavega með rifur ?
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Wed 14. Nov 2012 21:34
by Jón Ragnar
-Siggi- wrote:Ertu ekki með rúðurnar niðri eða allavega með rifur ?
Er með rifu á afturrúðunum

Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Wed 14. Nov 2012 23:07
by smamar
Jón Ragnar wrote:-Siggi- wrote:Ertu ekki með rúðurnar niðri eða allavega með rifur ?
Er með rifu á afturrúðunum

Vá hvað ég gleymi alltaf að það sé hægt að opna afturrúðunar, annars hef ég notað dryer sheets og hef heyrt um moth balls.
En það er kanski meira til að losna við mýs og pöddur og drasl
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Wed 14. Nov 2012 23:08
by srr
smamar wrote:Jón Ragnar wrote:-Siggi- wrote:Ertu ekki með rúðurnar niðri eða allavega með rifur ?
Er með rifu á afturrúðunum

Vá hvað ég gleymi alltaf að það sé hægt að opna afturrúðunar, annars hef ég notað dryer sheets og hef heyrt um moth balls.
En það er kanski meira til að losna við mýs og pöddur og drasl
Er ekki silica gelið líka til að losna við skordýr?
Þetta er alltaf í skókössum etc....
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Thu 15. Nov 2012 20:23
by Navigator
silica gel er rakadrægt og notað til að losna við raka úr ýmsu.
ætla að giska á að þegar þú settir bílinn inn hafi verið smá bleyta á gólfinu og svo fer bíllinn inn í hlýjuna, vatnið gufar upp og kemst ekki út svo það verður rakamettað loft í bílnum og byrjar að falla út á köldustu stöðum s.s. rúðum.
þetta er kannski ok í smá stund en það getur verið allt annað en grín að vera með "pínu" myglu útum allan bíl (athuga sæti, miðstöð, gólf og í kverkum), það gæti orsakað ofnæmisviðbrögð (hausverkur, hósti, asmi, þreyta o.fl). hjá viðkvæmum og jafnvel eituráhrif.
við þekkjum dæmi um svona ullabjakk í miðstöðvum, þarf að þrífa það frá a-ö með hreinsiefnum.
annars ábending í leiðinni til þeirra sem eiga bíl með frjókornasíu, það Á að skipta henni út á hverju ári !
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Thu 15. Nov 2012 22:24
by Jón Ragnar
Navigator wrote:silica gel er rakadrægt og notað til að losna við raka úr ýmsu.
ætla að giska á að þegar þú settir bílinn inn hafi verið smá bleyta á gólfinu og svo fer bíllinn inn í hlýjuna, vatnið gufar upp og kemst ekki út svo það verður rakamettað loft í bílnum og byrjar að falla út á köldustu stöðum s.s. rúðum.
þetta er kannski ok í smá stund en það getur verið allt annað en grín að vera með "pínu" myglu útum allan bíl (athuga sæti, miðstöð, gólf og í kverkum), það gæti orsakað ofnæmisviðbrögð (hausverkur, hósti, asmi, þreyta o.fl). hjá viðkvæmum og jafnvel eituráhrif.
við þekkjum dæmi um svona ullabjakk í miðstöðvum, þarf að þrífa það frá a-ö með hreinsiefnum.
annars ábending í leiðinni til þeirra sem eiga bíl með frjókornasíu, það Á að skipta henni út á hverju ári !
Einmitt fór yfir allt þegar ég tók hann út í fyrra og hreinsaði allt
Gott innlegg
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Sun 18. Nov 2012 14:38
by HaffiG
Minn fór pissblautur inn í sjóðandi heitan skúr.. allar rúður galopnar og skott, og hann er eins og hrökkbrauð núna

Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Sun 18. Nov 2012 15:27
by BirkirB
Aron123 wrote:er frjókorna sía í e36 ?
Það er í þínum. Og það er vesen að skipta um...
Re: Geymsla á bíl yfir veturinn

Posted:
Sun 18. Nov 2012 16:37
by smamar
Svona leit hún út þegar ég skipti um...já frekar nasty

