Page 1 of 1

Sandblástur/riðhreinsun

PostPosted: Mon 05. Nov 2012 14:23
by jens
Mig langar að vinna á yfirborðsriði þ.e.a.s ekki með að skrapa og pússa með sandpappír því að virðist ekki endast nema í mjög stuttan tíma.

Langar að sandblása þetta sjálfur inn í skúr svo spurninginn er hvað þarf ég til og hvar er best að fá þessa hluti, allar reynslu sögur vel þegnar.

Væri líka gott að fá ráðleggingar með grunn eftir svona aðgerð.

Re: Sandblástur/riðhreinsun

PostPosted: Mon 05. Nov 2012 18:48
by gardara
Getur keypt sandblástursstút framan á loftpressu, verkfærasalan í síðumúla er að selja frekar ódýra svoleiðis græju.

Ertu annars að handpússa með sandpappír? Ef svo er þá gætu vírbusti eða sandpappír framan á borvél verið lausn. Eða þá sandpappírs juðari.

Re: Sandblástur/riðhreinsun

PostPosted: Mon 05. Nov 2012 20:50
by Jökull
það er líka bara hægt að fara með hann á verkstæði og láta gera þetta :wink:

Re: Sandblástur/riðhreinsun

PostPosted: Mon 05. Nov 2012 22:00
by jens
Jökull wrote:það er líka bara hægt að fara með hann á verkstæði og láta gera þetta :wink:


Það væri kannski einfaldast en hentar ekki í þetta skipti.