Page 1 of 1

Rúða og Stýri

PostPosted: Mon 22. Oct 2012 10:23
by Wigelund
Ekki viss hvort ég ætti að setja þetta hér eða í auglýsingarþráðinn.

Sælir, heyriði það eru 2 vandamál sem ég vill kippa í lag á bílnum minum.

e46, 99', BMW 318i.

Nr. 1 kom nuna bara þegar hann kom úr viðgerð en hægri rúðan fór treglega upp þangað til allt í einu nuna er hun hætt að fara upp né niður, bara heyrist motorhljóð en hún situr kyrr. Ætlaði að ath hvort ég þurfi að kaupa bara nýjann mótor eða hvort rúðan sé kannski dottin af? Ef svo er er einhver með mótor til sölu og getur kannski skipt um þetta fyrir mig?

Nr.2 þá var skornar 2 línur í stýrið á bílnum þegar ég keypti hann en það hefur versnað þannig að það er buið að rifna upp leðrið.. ætlaði bara að láta bólstra það aftur,
Einhver sem er snillingur í að bólstra stýrið aftur fyrir mig?

Endilega veriði í bandi,

mbk,
Gunnar Wigelund

Re: Rúða og Stýri

PostPosted: Mon 22. Oct 2012 10:52
by íbbi_
að láta bólstra stýri almennilega er fokdýrt.

það er stýri í bílin til sölu ódýrt í varahlutadálknum hérna á kraftinum,

ef það heyrist í mótornum, þá er að öllum líkindum upphalarinn sjálfur farinn, kipptu hurðaspjaldinu af og kíktu á það, eða fáðu e-h til að gera það fyrir þig ef þú telur þig eki valda því

Re: Rúða og Stýri

PostPosted: Mon 22. Oct 2012 17:00
by Axel Jóhann
Upphalararnir fara iðulega í þessum bílum, ég get skipt um þá og skoðað þetta fyrir þig. :) 695-7205