Page 1 of 1
E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Thu 04. Oct 2012 22:25
by sosupabbi
Þetta er undarleg bilun og hef ég alternatorin grunaðan en bilunin lýsir sér þannig að þegar búið er að keyra bílinn í svona 2min þá byrja ljós að loga í mælaborðinu(fyrst ABS svo Spólvörn) og stuttu eftir það sloknar á útvarpinu og svo að lokum bílnum, en ef ég gef bílnum yfir ca 2300rpm þá hverfa ljósin, útvarpið kemur aftur inn og hægt er að nota bílinn eðlilega alveg þangað til að drepið er á honum og ræst aftur þá hefst þetta ferli aftur, bílinn virðist ekki tapa rafmagni á að standa. Ég er búinn að skipta um rafgeymir og setti 100AH lítið notaðan rafgeymi í bílinn en það dugði ekki til. Mældi pólana í húddinu og mældist rétt rúmlega 14V í gangi og rétt rúmlega 12V ekki í gangi. Einhverjar uppástungur eða er þetta bara alternatorinn?
mbk. Markús
Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Thu 04. Oct 2012 22:53
by Axel Jóhann
Mældu hleðsluna á bílnum, þaes dreptu á honum og ekki gefa honum neitt inn, láttu hann bara ganga þannig að hann verði með vesen, og mældu þá hleðsluna. Þetta hljómar eins og alternatorinn sé ekki að byrja hlaða almennilega fyrr enn á snúning.
Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Thu 04. Oct 2012 23:11
by sosupabbi
Axel Jóhann wrote:Mældu hleðsluna á bílnum, þaes dreptu á honum og ekki gefa honum neitt inn, láttu hann bara ganga þannig að hann verði með vesen, og mældu þá hleðsluna. Þetta hljómar eins og alternatorinn sé ekki að byrja hlaða almennilega fyrr enn á snúning.
Já það meikar sens en ég skil þá ekki afhverju vandamálið kemur þá ekki eftur eftir smá akstur því þetta vandamál birtist eftir start og svo er ekið í 2 min, ef hann væri ekki að hlaða almennilega nema á þessum X snúning ætti þá ekki vandamálið að birtast aftur eftir meiri keyrslu? hef alveg keyrt hann til keflavíkur alla leið í 1800snúningum alla leið og vandamálið ekkert komið aftur fyrr en drepið er á og startað aftur. Mæli þetta á morgun "in action" og hendi inn tölunum.
Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Fri 05. Oct 2012 12:24
by BMW_Owner
ég held þú þurfir bara að gefa mér bílinn, þá lagast þetta..
Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Fri 05. Oct 2012 15:08
by ömmudriver
Þú getur líka bara aflæst OBC í bílnum hjá þér og þá sýnir hún þér hleðsluna hverju sinni

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Sat 06. Oct 2012 01:40
by sh4rk
lausnin á þessu heitir M60

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Sat 06. Oct 2012 02:29
by srr
sh4rk wrote:lausnin á þessu heitir M60

Já,,,,færri kerti til að skipta um t.d.

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Sat 06. Oct 2012 11:22
by sh4rk
Ja sem er ekki svo efitt þegar þau ákveða fara svona sjálf

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Sat 06. Oct 2012 16:50
by ömmudriver
Strákar, þið eruð að gleyma aðal mótornum:

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Sun 07. Oct 2012 06:32
by sosupabbi
allt mjög góðir mótorar og er m60 að mínu mati besti allaround en því miður held ég að umrædd bilun tengist mótornum ekki neitt

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Mon 08. Oct 2012 16:44
by BMW_Owner
þess má til gamans geta að þinn og minn eru einu bílarnir á götunni þessa dagana og hafa "svipaða" bilun, bílinn hjá mér fer í fýlu ef ég keyri hann ekki minnstakosti á 2 daga fresti og tæmir gjörsamlega allt rafmagn á bílnum (engin skýring og truflar mig ekki neitt því ég er annaðhvort að nota hann sem daily eða ekki neitt) en ég vona að þú finnir útúr þessu hjá þér en til hughreystingar þá er minn svipaður

Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Mon 08. Oct 2012 18:50
by gstuning
sosupabbi wrote:Axel Jóhann wrote:Mældu hleðsluna á bílnum, þaes dreptu á honum og ekki gefa honum neitt inn, láttu hann bara ganga þannig að hann verði með vesen, og mældu þá hleðsluna. Þetta hljómar eins og alternatorinn sé ekki að byrja hlaða almennilega fyrr enn á snúning.
Já það meikar sens en ég skil þá ekki afhverju vandamálið kemur þá ekki eftur eftir smá akstur því þetta vandamál birtist eftir start og svo er ekið í 2 min, ef hann væri ekki að hlaða almennilega nema á þessum X snúning ætti þá ekki vandamálið að birtast aftur eftir meiri keyrslu? hef alveg keyrt hann til keflavíkur alla leið í 1800snúningum alla leið og vandamálið ekkert komið aftur fyrr en drepið er á og startað aftur. Mæli þetta á morgun "in action" og hendi inn tölunum.
Er búið að mæla strauminn sem alternatorinn gefur af sér?
Það er eitt að losna við hleðsluljósið og allt annað að hann sé í raun að gefa almennilegann straum af sér.
Re: E32 750iL tæmir rafmagn

Posted:
Fri 12. Oct 2012 20:35
by Navigator
rafgeymir í lagi á að vera um 13V en ekki 12V, prófa að mæla geyminn/geymana með álagsmæli.
annars ætti að vera hægt að spennumæla frá alternator með vélina á misjöfnum snúningi, smella vírum á póla og leiða þá inní farþegarými og setja í AVO-mæli, hægt að fylgjast með "on-line".