Page 1 of 1

Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Fri 28. Sep 2012 21:10
by burgerking
Reif mótor og allt úr húddinu hjá mér á e36 316i
búinn að troða öllu aftur í og tengja allt aftur....

Fæ hvorki neista né bensín... einhverjir spekingar með hugmyndir??
Bíllinn er búinn að standa í nokkra mánuði án rafgeymis

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Fri 28. Sep 2012 23:12
by slapi
Er aðal relayið fyrir tölvuna að smella inn?
Ef svo er getur verið að þú sért í EWS vandamáli?

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Sat 29. Sep 2012 00:59
by burgerking
Jebb það smellur inn

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Sat 29. Sep 2012 08:34
by slapi
Það þyrfti að lesa hann , hugsanlega sveifarásskynjari.

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Sat 29. Sep 2012 09:23
by burgerking
getur þetta ekki verið immobalizer? en já, það sem ég er einmitt búinn að finna hjá google frænda er annaðhvort immobalizer eða sveifarásskynjari... Veit ekki hvar ég get lesið af honum hérna fyrir austan... (er á Fáskrúðsfirði)

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Thu 25. Oct 2012 23:41
by burgerking
er búinn að senda tölvuna og tilheyrandi suður.. var sett í annan bíl og hann fór í gang, var kóðað aftur saman til vonar og vara, er búinn að prufa ða skipta út dme relay, tók eftir einu núna þegar ég svissa á bílinn að þá kemur ekkert vélarljós... einhver sem hefur hugmynd um hvað það gæti verið?? enn fær hann engan neista og bensíndælan fer ekki í gang, en ef ég set jörð með relayinu fyrir bensíndæluna þa´fer hún í gang.. Ég er að verða geðveikur á þessu :argh:

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Fri 26. Oct 2012 10:41
by Axel Jóhann
Búinn að prófa sveifarásskynjara?

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Fri 26. Oct 2012 16:37
by burgerking
Axel Jóhann wrote:Búinn að prófa sveifarásskynjara?

Neibb reyndar ekki, ætla prufa það næst :)

Re: Vesen með að koma m43b16 mótor í gang

PostPosted: Sat 27. Oct 2012 19:17
by BMW_Owner
153þúsund prósent sveifarásskynjarinn