Sælir félagar, ég ætlaði að posta hérna einum þræði og athuga hvort einhver meistari gæti aðstoðað mig við að finna út úr þessum vandamálum.
1.) Miðstöðin: Það virðist sem hún blási bara heitu, sem er kannski ágætt yfir veturinn en svolítið pirrandi samt sem áður.
2.) Stefnuljós: Það er stundum þannig að þegar ég gef stefnuljós þá kemur ekkert ljós upp í mælaborðið , en þegar það kemur þá á það til að festast inni í mælaborðinu (fer samt af ljósið sjálft ef ég slekk á stefnuljósinu).
3.) Samlæsingin: Bíllinn byrjaði upp úr þurru í fyrradag að læsa sér og opna sjálfur, gerði það nokkrum sinnum í eitt skiptið sem ég var að keyra. Gerist líka þegar bíllinn er ekki í gangi, er þetta eitthvað í lyklinum, þarf að reprogramma hann eða eitthvað svoleiðis?
Með von um jákvæð svör, kv. Helgi
|