Page 1 of 1

skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Wed 05. Sep 2012 17:02
by twitch
Ég er með Bmw e36 320 bíl og hann hefur alltaf gengið mjög fínt hjá mér þangað til allt í einu í dag þegar ég var að beygja inná bílaplan og var að hægja á mér þá byrjar hann að ganga skringilega á hægaganginum og þegar ég er að keyra af stað í fyrsta gír þá er eins og hann koki smá og svo allt i einu kemur allt powerið inn og sömuleiðis gerist þetta lika i öllum hinum gírunum þegar ég er ekki með hann í kvínandi botni... mér datt í hug að spyrja ykkur áður en ég ræðst á kvikindið hvort það sé möguleiki að þetta sé loftflæðiskynjarinn, throttlebody skynjarinn eða hvað þetta gæti verið, nú er ég nýbuinn að loka ventlalokinu þar sem ég var að skifta um pakkningu þar og hann hefur gengið fínt í þessa rúma viku þangað til fyrst nú,

hvernig veit ég hvort skynjari sé farinn?

ég prufaði að taka loftlæðiskynjarann úr sambandi og starta honum þannig hann versnaði ekkert við það hefði haldið að hann ætti að versna efað það væri ekki vandinn.

Re: skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Wed 05. Sep 2012 21:19
by x5power
spurning að fá tölvulestur hjá autosport.is

Re: skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Wed 05. Sep 2012 21:44
by twitch
Komið í lag var ónytt háspennukefli

Re: skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Wed 05. Sep 2012 22:08
by srr
x5power wrote:spurning að fá tölvulestur hjá autosport.is

:lol:

Re: skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Thu 06. Sep 2012 08:44
by Zed III
srr wrote:
x5power wrote:spurning að fá tölvulestur hjá autosport.is

:lol:


:hmm:

Hvað er hlægilegt við þetta ?

Re: skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Thu 06. Sep 2012 10:16
by srr
Að tala um sig í þiðju persónu.

Re: skrítinn gangur í bmw e36 320!!

PostPosted: Thu 06. Sep 2012 12:01
by Zed III
srr wrote:Að tala um sig í þiðju persónu.


ahh, skil.

:thup: