Page 1 of 1

Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 14:59
by Bjarkig
Var að spá í að flytja inn e60 535d frá Þýskalandi, þegar ég reyndi að finna út mengunarmagnið hjá þessum bíl fékk ég 2 tölur. Annarsvegar um 160g og hinsvegar 200g, annar er með hvarfakút en hinn ekki.

Með hvarfakút er hægt að koma bílnum úr vörugjaldsflokki 150% niður í 135% þannig að hugmyndin var að setja undir hann hvarfakút úti...

Var að spá hvort tollurinn sé með 535d skráðann í einhverjum flokki, þá líklega í efri mörkum. Eða hvort hann framkvæmi mælingu eða sætti sig við pappíra frá viðurkenndum aðila sem mælir hann úti eða hingað kominn?

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 15:39
by gstuning
Þyrftirru ekki að fá staðfesta breytingar skoðun úti sem breytir mengunargildinu, það væri það sem tollurinn myndi vilja sjá.
Official pappíra

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 16:10
by ///M
Er hægt að fá e60 án hvarfakúts? Það hljómar undarlega.

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 16:44
by Bjarkig
@gstuning, það er einmitt það sem ég var að spá. En ég lvil vera 100% viss um að það sé viðurkennd leið...

@//M, það má vel vera að það sé en ég rakst á tölfræði um eyðslu/mengunarmagn og þar var tekið fram particle filter hjá sumum en öðrum ekki, ég gerði ráð fyrir að það væri hvarfakútur...

http://www.car-emissions.com/cars/index/535d+bmw héðan hef ég tölurnar, spurning hvort þetta sé legit...

og já bíllinn sem ég hef í huga er 09 árg, spurning hvort það breyti einhverju...

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 18:37
by slapi
Er það ekki með og án sótsíu?
Eu4 vs eu5

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 19:26
by Bjarkig
það gæti alveg verið, hef hvorki heyrt um sótsíu né particle filter áður, þannig að seg þú mér :) Bíllinn er skráður Euro 4 í mengunarflokki

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Tue 04. Sep 2012 19:28
by Axel Jóhann
Þá er hann án sótagnasíu.

Re: Innflutningur á bíl, hvernig ákvarðar tollurinn gjöldin?

PostPosted: Wed 05. Sep 2012 19:31
by Bjarkig
var að fatta að bílarnir með um 160g eru 2011+

04-06 eru með 200g en 07-09 eru með 182g, þannig að einhvernveginn verð ég að ná honum niður um 3g fyrir vottaða mælingu :?

var síðan að taka eftir því að í upplýsingunum stendur "Particulate filter" en hann er samt í Euro 4 ?