Page 1 of 2

USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sun 02. Sep 2012 09:37
by Hreiðar
Sælir,

var bara að spá með þessar USA týpur, þar eru stefnuljósin að framan notuð sem stöðuljós.
Langaði bara að vita hvort það væri hægt að breyta þessu og að hafa þetta bara eins og
euro týpurnar? Ekkert stress, finnst bara flottara og snyrtilegra þegar að þessi appelsínugulu
ljós eru ekki stanslaust logandi. Þannig ég vildi bara athuga hvort einhver hérna hefur breytt
þessu og þá væri ég til í að vita hvað sá einstaklingur gerði :)

kv, Hreiðar.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sun 02. Sep 2012 12:55
by BMW_Owner
minnir að í þessum stefnuljósum sé 3póla perur, og í stefnuljósið liggja 3 vírar ef þú klippir á einn þeirra þá hættir þetta en stefnuljósið sjálft virkar áfram, s.s 1 - og 2 + þarft bara að vita hvorn + inn þú mátt klippa á.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sun 02. Sep 2012 13:16
by SteiniDJ
Smá pæling: eru stöðuljósaperur í bílnum? Ef ekki, þá fara stefnuljósin sjálfkrafa á ef ég man rétt.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sun 02. Sep 2012 17:24
by Hreiðar
SteiniDJ wrote:Smá pæling: eru stöðuljósaperur í bílnum? Ef ekki, þá fara stefnuljósin sjálfkrafa á ef ég man rétt.

Neibb, það eru ekki stöðuljósaperur í bílnum. :(

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sun 02. Sep 2012 20:45
by slapi
Þá ertu nátturulega ekki með stöðuljós á bílnum og bíllinn því ekki skoðunarhæfur.
Ef þú vilt hafa þetta eins og í evrópu bíl þá er það hægt en þá þarf að kóða bílinn fyri evrópumarkað(þá geturðu fengið dagljós) og ef þetta er pre-facelift þá þarf að draga tvær leiðslur úr ljósastjórnboxinu fram í ljós fyrir stöðuljósin og setja þau á rétta staði.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sun 02. Sep 2012 22:14
by Hreiðar
slapi wrote:Þá ertu nátturulega ekki með stöðuljós á bílnum og bíllinn því ekki skoðunarhæfur.
Ef þú vilt hafa þetta eins og í evrópu bíl þá er það hægt en þá þarf að kóða bílinn fyri evrópumarkað(þá geturðu fengið dagljós) og ef þetta er pre-facelift þá þarf að draga tvær leiðslur úr ljósastjórnboxinu fram í ljós fyrir stöðuljósin og setja þau á rétta staði.

úff mikið mál? langar svo í angel eyes, en kann 0 að tengja það ef það er með svona USA ljósum!
Kannski einhver sem kynni að tengja það fyrir mig ef ég keypti mér SMD angel eyes hringi?

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Mon 03. Sep 2012 08:06
by bErio
Ef að stöðuljosaperurnar eru ekki í þá taka stefnuljósin við og loga í stað stöðuljósperanna

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Wed 05. Sep 2012 09:35
by Zed III
slapi wrote:Þá ertu nátturulega ekki með stöðuljós á bílnum og bíllinn því ekki skoðunarhæfur.
Ef þú vilt hafa þetta eins og í evrópu bíl þá er það hægt en þá þarf að kóða bílinn fyri evrópumarkað(þá geturðu fengið dagljós) og ef þetta er pre-facelift þá þarf að draga tvær leiðslur úr ljósastjórnboxinu fram í ljós fyrir stöðuljósin og setja þau á rétta staði.


Má ekki bara taka plús pólinn fyrir stöðuljósin og tengja hann við angel eyes hringina eða stöðuljósin ef þau eru til staðar ?

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Thu 06. Sep 2012 22:29
by x5power
nei! þetta er örugglega jarðstýrt eins og öllum usa bílum!

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Fri 07. Sep 2012 08:33
by Zed III
x5power wrote:nei! þetta er örugglega jarðstýrt eins og öllum usa bílum!


hvernig virkar það?

Er ekki bara ein jörð, tveir plúsar og tveir glóðarþræðir í perunni ? Annar plúsinn er stöðuljósið og er alltaf á og en hinn er stefnuljósið. Jörð væri svo samnýtt.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sat 08. Sep 2012 07:39
by slapi
Peran er bara einpóla , sama ljósið fyrir stefnuljósið og parkljósið.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sat 08. Sep 2012 08:05
by Zed III
slapi wrote:Peran er bara einpóla , sama ljósið fyrir stefnuljósið og parkljósið.


Ok, en það breytir svo sem ekki conceptinu með að flytja bara til strauminn frá stefnuljósahorninu yfir í stöðuljós.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sat 08. Sep 2012 08:24
by slapi
Jú því þegar þú myndir gefa stefnuljós myndi stöðuljósið hjá þér blikka einnig ef þú myndir gera það.

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sat 08. Sep 2012 08:42
by Zed III
Alveg sure ?

ef við flytjum stöðuga plúsinn yfir í stöðuljósin og skiljum eftir þennan sem sendir straum þegar við notum stefnuljósið ætti stöðuljósið ekki að blikka.

þú ættir annars að þekkja þetta og ég ætti að leggja frá mér skófluna :D

Re: USA bíll (stefnuljós logandi)

PostPosted: Sat 08. Sep 2012 08:47
by slapi
Það er sami vírinn frá ljósastjórnboxinu fyrir stefnuljósið og stöðuljósið og síðan er bara föst jörð.
:)