bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Viðvörun í mælaborði
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=57904
Page 1 of 1

Author:  Páll Ágúst [ Wed 29. Aug 2012 13:26 ]
Post subject:  Viðvörun í mælaborði

er með e39 1997 módel og í morgun var allt í góðu, svo áðan kom (!) þetta ljós í mælaborðið og ég get ekki opnað skottið...

Opnaði skottið fyrir c.a 2 tímum og þetta ljós var ekki og allt í lagi, hvað getur þetta verið?

Author:  Danni [ Wed 29. Aug 2012 13:45 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

Þetta í miðjunni af merkjunum í hægra horninu?

Image

Þetta þýðir að það annað hvort vantar bremsuvökva hjá þér eða bremsuklossarnir eru að verða búnir. Á ekki að hafa nein áhrif á skottið, hlýtur að vera tilviljun.

Ef að takkinn í skottlokinu og takkinn hjá húppopnunar handfanginu virka ekki til að opna skottið, þá á að vera hægt að opna með lyklinum. Lykillinn er backup sem fer framhjá rafmagnsmóturunum svo það sé hægt að opna skottið ef bíllinn er rafmagnslaus eða læsingamótorinn bilar.

Author:  Páll Ágúst [ Wed 29. Aug 2012 16:14 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

Já þetta er það ljós.

Finnst þetta svo skrítið með skottið, aldrei gert þetta áður. Hefur alltaf virkað bara að snúa lyklinum í bílstjórahurð þannig að allar hurðar á bílnum aflæsist og þá er hægt að opna skottið, svo hef ég getað notað lykilinn í skottlokið sem að einnig opnar allar hurðar í bílnum. Enn núna opnast allar hurðar nema skottið....furðulegt as fuck.

Var að tengja bassabox í gærkvöldi, gæti verið að titringur gæti ollið svona? Takkinn á lyklinum virkar ekki, þarf að láta endurforrita hann.

EDIT: Veit ekki af neinum takka hjá húddopnarafanginu, er svoleiðis?

Author:  ömmudriver [ Thu 30. Aug 2012 00:14 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

Þetta ljós kemur líka ef t.d. alternatorinn hættir að hlaða og þegar alternatorreimin hrekkur af/ slitnar og eflaust logar það líka þegar eitthvað fleirra klikkar.

Svo er sér ljós þegar klossarnir eru að verða búnir.

Author:  Danni [ Thu 30. Aug 2012 00:50 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

ömmudriver wrote:
Þetta ljós kemur líka ef t.d. alternatorinn hættir að hlaða og þegar alternatorreimin hrekkur af/ slitnar og eflaust logar það líka þegar eitthvað fleirra klikkar.

Svo er sér ljós þegar klossarnir eru að verða búnir.


Nei, þetta ljós er bara fyrir bremsurnar. Eina ljósið sem kviknar ef alternator klikkar er rafgeymaljósið.

Author:  ömmudriver [ Thu 30. Aug 2012 02:29 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

Danni wrote:
ömmudriver wrote:
Þetta ljós kemur líka ef t.d. alternatorinn hættir að hlaða og þegar alternatorreimin hrekkur af/ slitnar og eflaust logar það líka þegar eitthvað fleirra klikkar.

Svo er sér ljós þegar klossarnir eru að verða búnir.


Nei, þetta ljós er bara fyrir bremsurnar. Eina ljósið sem kviknar ef alternator klikkar er rafgeymaljósið.



:mrgreen:

Author:  Páll Ágúst [ Fri 31. Aug 2012 01:39 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

Svo núna vælir hann ekki þegar ég slekk á bílnum með ljósin á, gæti þetta og skottið tengst öryggi sem er mögulega farið?

Author:  Danni [ Fri 31. Aug 2012 01:58 ]
Post subject:  Re: Viðvörun í mælaborði

Held að það sé kominn tími fyrir þig á rúnt til Eðalbíla að láta tengja hann í tölvu.

Ýmsir rafmagns kvillar sem er hægt að laga þannig. Sem dæmi átti ég einu sinni E39 540i sem hélt að hurðarnar væru opnar þegar þær voru lokaðar og gaf mér endalaus Door Open villuboð. Síðan virkaði þjófavörnin ekki og hann slökkti ekki á útvarpinu nema ef að inniljósin voru slökkt. Fór með hann í gamla B&L og hann var tengdur í tölvu og það lagaði allt saman.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/