Page 1 of 1

Kveikjuvesen í m20

PostPosted: Wed 22. Aug 2012 22:21
by eiddz
Sælir,
Smá vesen enn einu sinni...
Stoppaði fyrir utan búð í 5 mínútur og þegar ég fer aftur út, þá fer bíllinn ekki í gang.
Eftir nánari skoðanir þá kom í ljós að hann fær ekki neista.
Prufaði háspennukeflið og hann fær neista þaðan en ekki út frá kveikjuloki og hamri.
Er með nýlegt lok, hamar og þræði. Ég prufaði þá að setja gamla lokið og hamarinn í en ekkert breyttist..
Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að angra greyið?

Re: Kveikjuvesen í m20

PostPosted: Thu 23. Aug 2012 11:05
by ömmudriver
Fær hann bensín og nóg af lofti? Eru rétt kerti í vélinni?

Re: Kveikjuvesen í m20

PostPosted: Thu 23. Aug 2012 12:37
by eiddz
ömmudriver wrote:Fær hann bensín og nóg af lofti? Eru rétt kerti í vélinni?


Já, hann fær bensín og loft og þetta eru rétt kerti, er búinn að vera með þessi kerti síðan seinasta sumar.
Hann fær bara ekki neista frá hamrinum/lokinu.. :thdown:

Ef sveifarásskynjarinn/knastásskynjarinn er farinn, gæti það orsakað þetta?

Re: Kveikjuvesen í m20

PostPosted: Thu 23. Aug 2012 16:20
by Einarsss
jamm, svo er btw ekki knastásskynjari á m20 ;)

Re: Kveikjuvesen í m20

PostPosted: Thu 23. Aug 2012 17:49
by Axel Jóhann
Sveifarásskynjari klárlega.

Re: Kveikjuvesen í m20

PostPosted: Thu 23. Aug 2012 18:04
by eiddz
Finnst samt ekki koma nægilega sterkur neisti frá keflinu, á einhver til kefli sem ég gæti fengið í láni til að prufa ?