Page 1 of 1

Tæknileg heimsókn.

PostPosted: Sat 01. May 2004 20:26
by bebecar
Ég vil þakka þeim sem kíktu í heimsókn á mig og Jobba (head mechanic) í kúplingsskiptunum, það var gaman að þið skylduð leggja krók á leið ykkar.

Hlynur, Gunni, Stefán, Árni og Óskar - er ég nokkuð að gleyma einhverjum?

Ég er búin að senda Daníel EP í von um að fá parta hjá honum.

EIn tæknileg spurning til þeirra sem það vita, það eru smá strik í swinghjólinu svipað og á bremsudisk sem hefur fengið borðann í sig... skiptir þetta miklu máli og borgar sig að standa í því að láta renna hjólið, hvað með balanseringu?