Page 1 of 1
Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 12:29
by AronT1
Sælir vinir,
Því miður þá var ég einn af þeim sem lenda í umferðaróhappi núna um verslunarmannahelgina, en er orðinn nokkuð góður og svona, en nú ætla ég að hugsa aðeins um bílinn.. Hann er minna skemmdur en ég bjóst við í fyrstu, bara vatnskassi, stuðari, nýrnabiti og nýrum og það að framan.. En svo er eitt, loftpúðar, hvað þarf ég að gera við þá og svona? þarf ég að kaupa nýja púða til að setja í stýrið og í mælaborðið og reseta airbag ljós og svona eða hvernig virkar það? Ætla mér bara að taka þvi rólega í uppgerð.. Og er eitthvað sem þið mælið með a kíkja á eftir svona slys?
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 12:51
by Zed III
Þú þarft bara nýja púða í stað þeirra sem sprungu út, og reseta svo ljósið.
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 12:55
by AronT1
Veistu nokkuð hvar eg fæ nyja púða?
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 13:01
by Jón Ragnar
Skemmdiru nýja stuðarann?

Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 13:01
by Zed III
testaðu "til sölu" dálkinn og skeltu inn auglýsingu í "óskast keypt" dálkinum.
hvaða púðar sprungu ?
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 13:05
by AronT1
Jón Ragnar wrote:Skemmdiru nýja stuðarann?

Haha nei, er með allt hér heima sem ég fékk sent um daginn

Og þeir sem sprungu voru bara í stýrinu og mælaborðinu farþegamegin.
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 13:13
by Jss
AronT1 wrote:Jón Ragnar wrote:Skemmdiru nýja stuðarann?

Haha nei, er með allt hér heima sem ég fékk sent um daginn

Og þeir sem sprungu voru bara í stýrinu og mælaborðinu farþegamegin.
Hvernig stýri ertu með, ég á held ég ennþá loftpúða í svona stýri sem ég gæti selt þér:

Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 13:21
by AronT1
Er með svona stýri

Og smellur þetta í E36 ?
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 14:57
by ömmudriver
Gott að menn slösuðust ekki alvarlega en þú getur líka bara skipt um stýri og t.d. fengið þér sport stýri með loftpúða en loftpúðan í mælaborðið gæti verið erfiðara að fá "notaðan".
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 08. Aug 2012 15:26
by Danni
Eru þetta ekki einu loftpúðarnir í E36? Ss. í stýrinu og mælaborðinu. Annars þá á ég held ég loftpúða í stýrið handa þér. Á til tvo staka svona loftpúða úr 5 línum, ef þeir passa á milli geturðu fengið annan þeirra á einhverju góðu verði

Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Sat 11. Aug 2012 04:09
by AronT1
Það held ég nú, en er buinn að redda mér öðrum bimma sem fer í uppgertð núna á næstuni

Nota parta úr skemmda, eina sem ég gef upp.. það er 325i.. To Continue
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Sat 11. Aug 2012 12:51
by srr
En í sömu umræðu,,,,,þá gerði ég við tjónaða Mözdu fyrir nokkrum árum og þá þurfti ég að skipta um loftpúðatölvuna líka og klukkuhringinn í stýrinu ásamt því að skipta um loftpúðana.
Klukkuhringurinn, eða öllu heldur loomið í hann bráðnaði við það að loftpúðinn sprakk út.
Ræsir sagði mér að tölvan væri ónýt eftir það líka svo ég varð mér úti um aðra notaða frá Danmörku.
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Sun 12. Aug 2012 23:55
by Aron Andrew
Svo er ódýra leiðin, sem ég mæli samt ekki með. Það er að fjarlægja allt loftpúðatengt úr bílnum og afmá Airbag/SRS merki.
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Wed 15. Aug 2012 23:37
by Lindemann
srr wrote:En í sömu umræðu,,,,,þá gerði ég við tjónaða Mözdu fyrir nokkrum árum og þá þurfti ég að skipta um loftpúðatölvuna líka og klukkuhringinn í stýrinu ásamt því að skipta um loftpúðana.
Klukkuhringurinn, eða öllu heldur loomið í hann bráðnaði við það að loftpúðinn sprakk út.
Ræsir sagði mér að tölvan væri ónýt eftir það líka svo ég varð mér úti um aðra notaða frá Danmörku.
Stjórnboxið eyðileggst í þeim bílum sem eru með innbyggðan skynjara, það er kúla inní því sem við ákveðið högg losnar og virkjar púðana
Re: Loftpúðar og dót eftir slys..

Posted:
Thu 16. Aug 2012 21:26
by x5power
ég á púða í mælaborðið!