Page 1 of 1

Titringur í stýri E60

PostPosted: Tue 07. Aug 2012 13:29
by Haugur
Góðan dag.

Mig langar að fá álit hjá ykkur á smá böggi.

Ég er með E60 -545 og hann á það til að titra í stýri þegar ég stíg á bremsuna til að hægja á honum. Þetta kemur á ákveðnum hraða og virðist hafa aukist síðan ég lét balancera framdekkin.

Ég er með nýja diska að framan og nýja borða.

Any thoughts anyone.

Re: Titringur í stýri E60

PostPosted: Tue 07. Aug 2012 14:37
by BjarkiHS
Ég myndi giska á lélega balanseringu eða tæpar fóðringar.

Svo minnir mig að einhverjir hérna hafi verið í vandræðum með titring í stýri sem kom svo í ljós að voru verptir diskar að aftan.

Re: Titringur í stýri E60

PostPosted: Tue 07. Aug 2012 16:21
by Haugur
Sæll, ég er með nýja diska að aftan líka :)

Ég er að spá í hvort þetta dót geti verið málið.

http://s3.amazonaws.com/fcp-product-photography-us/public/assets/products/38479/large/E60FRONT8PIECEKIT.jpg?1311194499

Stangirnar í miðjunni festast við demparann öðru meginn og spyrnuna að neðan.

Re: Titringur í stýri E60

PostPosted: Tue 07. Aug 2012 22:11
by ppp
Er þetta ekki bara spyrnufóðring sem þarf að skipta um?

Hljómar þannig.

Re: Titringur í stýri E60

PostPosted: Wed 08. Aug 2012 12:42
by eiddz
Alltí lagi að prufa líka að svissa dekkjum, framdekk að aftan og afturdekk að framan, það er að segja ef það eru jafn breiðar felgur að framan og aftan.