BMW 3 E46, mælaborð
Sælir félagar, ég er með e46 og er í smá vandræðum. Ég lenti í því að það sprakk hjá mér dekk og ég lét laga það og allt í góðu með það en eftir að ég skipti hefur handbremsuljósið og ABS ljósið ekki hætt að loga, hraðamælirinn virkar ekki og bensínmælirinn er í algjöru rugli. Er þetta eitthvað sambandsleysi eða? Og já þetta var hjólið að aftan bílstjóramegin , er ekki hraðamælirinn til dæmis tengdur þar? Getur einhver sagt mér hvað ég þyrfti að gera til að finna þetta út 