bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=57410 |
Page 1 of 1 |
Author: | pallihelgi [ Sat 14. Jul 2012 13:30 ] |
Post subject: | BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang |
Sælir, mig vantar aðstoð. Ég er með BMW 320d 2005, sem ég var að kaupa. Búinn að keyra hann um 1500 km eftir að ég fékk hann. Var að koma úr ferð frá RVK-SELF-RVK-KEF-RVK og lagði bílnum heima hjá mér. Fer svo út eftir 3 tíma og þá kemur bara klikk í startaranum, skipti um hann þá rífur startarinn kolinn frá tengihringnum. Skipti aftur um startara og það sama gerist ekki neitt og það fer að rjúka úr startaranum þegar ég reyni að setja hann í gang. Prófa að ath að taka á sveifarásinni þá er hún alveg pikkföst fer hvortki aftur á bak eða áfram. ATH kvarðan á bílnum sé þá að það er alltof mikil olía á bílnum, svona einum til tveimur lítrum of mikið, hef ekkert sett á hann eftir að ég fékk hann. Getur eh hérna hugsanlega sagt mér hvað getur valdið þessu, því mér finnst skrítið að ég hafi lagt bílnum án þess að finna eh að, hvorki óhljóð eða kraftleysi og svo er mótorinn fastur... |
Author: | Hrannar E. [ Sat 14. Jul 2012 18:18 ] |
Post subject: | Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang |
Vatn í olíunni fyrst það er svona mikið á honum ? Annars er örugglega best fyrir þig að tala við Eðalbíla. |
Author: | Einarsss [ Sat 14. Jul 2012 18:33 ] |
Post subject: | Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang |
Oftast þegar það heyrist klikk í startaranum en ekkert meira gerist hjá mér þá vantar rafmagn á bílinn.. þeas það er næg spenna til að kveikja ljósin,útvarpið etc etc en ekki nóg til að snúa startaranum. |
Author: | BjarkiHS [ Sat 14. Jul 2012 18:36 ] |
Post subject: | Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang |
Einarsss wrote: Oftast þegar það heyrist klikk í startaranum en ekkert meira gerist hjá mér þá vantar rafmagn á bílinn.. þeas það er næg spenna til að kveikja ljósin,útvarpið etc etc en ekki nóg til að snúa startaranum. Hann segir að hann hafi tekið á sveifarásnum. En fyrst þú segir að engin óhljóð hafi verið þá finnst mér ótrúlegt að mótorinn sé fastur |
Author: | Einarsss [ Sat 14. Jul 2012 19:45 ] |
Post subject: | Re: BMW 320d e90 2005 Fer ekki í gang |
BjarkiHS wrote: Einarsss wrote: Oftast þegar það heyrist klikk í startaranum en ekkert meira gerist hjá mér þá vantar rafmagn á bílinn.. þeas það er næg spenna til að kveikja ljósin,útvarpið etc etc en ekki nóg til að snúa startaranum. Hann segir að hann hafi tekið á sveifarásnum. En fyrst þú segir að engin óhljóð hafi verið þá finnst mér ótrúlegt að mótorinn sé fastur úpps.. það fór framhjá mér ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |