Page 1 of 1

m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Tue 03. Jul 2012 14:16
by jonbi
get ég notað sveifarás úr m57b30 í m50b25 vanos mótor?
veit ekki einhver um það ?

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Tue 03. Jul 2012 20:32
by slapi
M57D30 sveifarásinn gefur eitt mesta stroke sem hefur verið í BMW L6 90mm en M50B25 er með 75 mm stroke og M54B30 er með 89.6mm.
Ég hef lesið að sveifarásinn passi í en það hafi þurft einhver mod á blokkinni þar sem counterwheigtin hafi rekist í á einhverjum köflum. En ég hef ekki prófað það eða séð það í eigin persónu.
Ég myndi halda að þetta myndi ganga upp án mikilla breytinga en maður veit aldrei.
ps
Þú færð semsagt 3 lítra slagrými úturþessu með stock bore (84mm) en ég held að það gæti orðið smá maus að fá stimpla og stangir til að passa við þetta þar sem munurinn er alveg töluverður.
Image

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 09:38
by jonbi
myndi ekki ganga að nota m57 sveifarásin, m20b20 stangir og m50 stimpla

hefur einhver séð einhvern þráð um þetta stroke úti?

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 09:51
by Axel Jóhann
Svo er S52B30 usa alveg málið. :thup:

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 10:01
by slapi
jonbi wrote:myndi ekki ganga að nota m57 sveifarásin, m20b20 stangir og m50 stimpla

hefur einhver séð einhvern þráð um þetta stroke úti?


Nei það myndi ekki ganga , 75mm stroke vs 89.6mm 130mm stangir vs 135mm , vantar 2.5mm uppá þannig að þú þarft stimpla sem eru með lægra comp hæð.

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 11:02
by Einarsss
Er hægt að taka ofan af kollinum á stimplunum? 2.5mm eru kannski of mikið.

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 16:35
by slapi
Já spurning sko.
Held að best væri að fá stimpla bara úr M54 og nýta 135 stangirnar hvort sem þær koma úr M54 eða M50. Ég veit að comphæðin í M42 stimplunum er eitthvað lægri en hvort það dugar veit ég ekki.

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 16:58
by jonbi
en er ekki álblokk í m54 og eru þá ekki öðruvísi stimplar ?

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Wed 04. Jul 2012 17:34
by slapi
Blokkin er úr áli jú en hann er slífaður M54 þannig að stimplarnir ganga á milli

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Thu 05. Jul 2012 10:18
by jonbi
en veistu hvað þessi sveifarás er þungur ?

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Thu 05. Jul 2012 10:59
by slapi
Held að hann sé gefinn upp um 24 kg í M54. Ætti ekki að vera mikið þyngri í M57

Re: m57 sveifarás í m50?

PostPosted: Thu 05. Jul 2012 12:41
by jonbi
en passar hann bæði úr m57d30 og m57tud30?