Page 1 of 1

Skipta um rockerarma í m20b25

PostPosted: Mon 11. Jun 2012 00:52
by eiddz
Er að reyna að skipta um rocker arm í m20b25 sem brotnaði hjá mér..
Er ekki að ná að ýta stönginni út, er búinn að losa spennu á öllum rockerörmum og búinn að taka "lykilinn" úr við tímareimina og er búinn að ná að ýta stönginni kannski 4cm en næ ekki að koma henni lengra, einhverjar hugmyndir?

Og hvað er þetta nr 5 á myndinni?

Image

Re: Skipta um rockerarma í m20b25

PostPosted: Mon 11. Jun 2012 18:57
by Aron Andrew
Málið er að seta sexkannt í endann, baða vippuásinn í olíu og jugga þessu, þetta tekur langann tíma en kemur með tímanum.

Líka hægt að nota krafttöng og hafa eitthvað á milli til að jugga þessu

Re: Skipta um rockerarma í m20b25

PostPosted: Mon 11. Jun 2012 23:17
by gstuning
Ef þú ert að þessu með vélina í bílnum þá er líka fínt ráð að setja eitthvað upp við hvalbakinn og nota svo eitthvað til að "spyrna" í aftari endann á stönginni, þ.e nota spýtu við hvalbakinn og rugga kúbeini á spýtunni þar sem að styttri endinn ýtir aftan á stöngina.

Re: Skipta um rockerarma í m20b25

PostPosted: Tue 12. Jun 2012 01:11
by eiddz
Þetta fór úr loksins en með miklum látum og stöngin ónýt :/
En er kominn með aðra og hún komin í :D