bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E36 M40b18 fer ekki í gang.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=56971
Page 1 of 1

Author:  Raggi_K [ Sun 10. Jun 2012 15:33 ]
Post subject:  E36 M40b18 fer ekki í gang.

Sælir strákar, vonandi getur einhver hjálpað mér með þetta.
Ég var að hreinsa spansgrænu af öllum öryggjum og relayum í bílnum hjá mér um daginn og þegar ég var búinn tók hann ekkert við sér. Það fyrsta sem mér datt í hug var að sjálfsögðu öryggjaboxið svo ég yfirfór allt sem ég hafði gert og reif boxið í sundur til að athuga með sambandsleysi eða skammhlaup en það var allt eins og nýtt inni í því.
Þá fór ég að tékka á því hvort bíllinn fengi bensín, sem hann gerir en svo tékkaði ég á neista og hann virtist ekki fá hann. Þá mældi ég kertaþræðina og sá að það fékkst ekkert viðnám úr einum þræðinum. Ég mældi líka háspennukeflið en hef ekkert annað en M42 staðla til að ganga út frá með það þar sem Bentley viðgerðarhandbókin nær ekki yfir M40 mótorinn. Viðnámið mældist 60% hærra en hámarkið sem bókin gaf upp fyrir M42, sem getur þó verið rétt í M40.
Nú er ég frekar nýr í BMW bransanum og þekki ekkert of vel inn á þessar tölvur, en pælingin mín er hvort einhver tölva neiti að senda boð í hápennukeflið út af ónýta þræðinum eða hvort það þurfi að endursetja eitthvað eftir að relayin hafa verið tekin úr?
Reynslan er að sjálfsögðu sú að ef einn þráður er farinn ætti bíllinn samt að ganga á þremur, en hann gekk eins og klukka áður. Ætli það hafi ekki bara verið tilviljun að þráðurinn hafi farið akkurat á þessum tímapunkti.

Allar uppástungur eru mjög vel þegnar og ef einhver er með M40 mótor og gæti mælt viðnámið í háspennukeflinu sínu fyrir mig væri það líka awesome. ;)

Author:  bjarkibje [ Thu 14. Jun 2012 00:09 ]
Post subject:  Re: E36 M40b18 fer ekki í gang.

Raggi_K wrote:

er svipuðum vandamálum....aðeins 1 kerti fær straum frá kertaþráðuðum sem ég skipti um og varð enginn munur...ætlaði að tékka á háspennukeflinu á morgun og skipta um það....
ef það virkar ekki þá veit ég ekki hvað er að mínum né þínum haha...er btw með m40b16

Author:  Raggi_K [ Thu 14. Jun 2012 14:25 ]
Post subject:  Re: E36 M40b18 fer ekki í gang.

Ég er með ný kerti og góða kertaþræði, viðnámið í háspennukeflinu er 1,1- 1,2 Ohm, sem virðist eiga að vera rétt og ég er búinn að hreinsa upp kveikjulokið og hamarinn. Er að fara að láta lesa af honum á eftir og skal láta þig vita hvað kemur út úr því. En þú færð allavega neista á 1 kerti, ertu búinn að tékka á kveikjulokinu? Háspennukefli er dýr fjárfesting þannig að ég myndi byrja á að mæla það áður en þú spreðar pening í það.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/