Page 1 of 2

ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Sun 20. May 2012 03:57
by gardara
Hvert er skemmtilegasta drifhlutfallið fyrir e36? Er það Evo drifið sem maður ætti að reyna að einblína á?

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Sun 20. May 2012 12:02
by Jón Ragnar
Er það 3.23?

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Sun 20. May 2012 20:10
by gardara
Jámms :)

Hérna er listi yfir stock drif...
Image


Eða er kannski eina vitið að fara í custom drif?

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Sun 20. May 2012 20:58
by Jón Ragnar
Ég vill allavega fá 3.23 frekar en 3.15 sem er núna

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Sun 20. May 2012 23:10
by birkire
3.23 er voða fínt aftan á zf310z kassa, hvað þá með s50 fremst

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Sun 20. May 2012 23:23
by gardara
En ég er með Getrag 420G :)

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 00:04
by Stefan325i
Ef þú er með 6 gíra kassan er þá ekki 0,81 í 6 gír ef svo er þá ætti 3.23 allavega að vera sveet á langkeyrslu.

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 00:07
by gardara
Sweet í langkeyrslu og nógu sprækt í spólvitleysu er það sem maður er að sækjast eftir :)

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 01:04
by Stefan325i
420--------ZF 320/310
1 4.32-----1st 4.2:1
2 2.54-----2nd 2.49:1
3 1.62-----3rd 1.67:1
4 1.24-----4th 1.24:1
5 1.00-----5th 1.0:1
6 0.83
3.75 -------R 3.9:1


Varst þú með ZF kassa á bílnu þínum fyrir svappið? Ef svo er þá eru hlutföllin mjög svipuð nema 6 gírinn er bara overdrive.

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 01:07
by gardara
Jább ZF kassa og 3,15 drif samkvæmt töflunni hér að ofan... Mér fannst þau hlutföll reyndar ekkert frábær í hraðakstri, var í að mig minnir 3500rpm í 5 gír á 100km/h

Ég er svona að velta því fyrir mér hvort ég eigi að kaupa 3,23 drif og skella 3,15 drifinu í hinn bílinn minn.

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 01:16
by krayzie
ég er með ZF kassa og 3.07 hlutfall sem er mjög fínt í krúsið og er á ca. 2500rpm á 100 km/h .. persónulega langar mig frekar í 3.23 til að fá meiri snerpu og í spól og vitleysu

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 03:08
by gardara
Eftir að hafa lesið mér aðeins til þá er ég búinn að komast að því að það sem menn kalla "stóra drifið" hér á íslandi er í raun miðstærð af drifi. En hið rétta stóra drif kom bara í e36 m3 evo.

Litla drifið - 168mm
Miðstærð af drifi - 188mm
Stóra drifið - 210mm

Ætli ég stefni ekki á að taka stóra drifið, mér sýnist ég því ekkert þurfa að spá í hlutföllum í bili þar sem þessi drif komu bara 3.23... Ég get svo farið í það að breyta hlutfallinu ef ég vil sjálfur síðar meir.

Sýnist ég þurfa að versla subframe líka fyrir stóra drifið og mögulega eitthvað fleira... Er einhver hér sem þekkir hvað ég þarf meira?

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 03:50
by sh4rk
Ef þú ert með 420 kassann og 3:15 drif þá ertu að damla á 2000rpm í 100km/h og á svona léttum bíl þá held ég að þetta sé fínt, er með 3:15 í 740i hjá mér sem er fínt en ætla að fara í 3:45

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 08:27
by fart
Hámarkshraði á Íslandi 100km/klst ..

Ég myndi fara í mjög hátt drif, 3.23 er fínt fyrir meginlandsakstur þar sem þú ert að krúsa á 130-150km/h.

Fyrir ísland og meira fjör myndi hærra hlutfall = meira gaman.

3.45 t.d.

Auðvitað ekki alveg að marka það, en ég er með 5speed kasas og 2.93 drif núna sem er fínt í autobahn krúsið, og fyrir mitt powerband. Hinsvegar sakna ég alltaf smá snerpunar sem var með 3.15 drifið, og mögulega fer ég aftur í það.

Re: ákjósanlegasta drifhlutfallið í e36?

PostPosted: Mon 21. May 2012 08:47
by gardara
fart wrote:Hámarkshraði á Íslandi 100km/klst ..

Ég myndi fara í mjög hátt drif, 3.23 er fínt fyrir meginlandsakstur þar sem þú ert að krúsa á 130-150km/h.

Fyrir ísland og meira fjör myndi hærra hlutfall = meira gaman.

3.45 t.d.

Auðvitað ekki alveg að marka það, en ég er með 5speed kasas og 2.93 drif núna sem er fínt í autobahn krúsið, og fyrir mitt powerband. Hinsvegar sakna ég alltaf smá snerpunar sem var með 3.15 drifið, og mögulega fer ég aftur í það.


þú átt væntanlega við lægra hlutfall = meira gaman, hærri tala þýðir lægra hlutfall og öfugt :wink:

Laukrétt annars, ég keyri afar sjaldan út á land svo að ég ekkert mikið á krúsinu á 100km/h+ í þau örfáu skipti sem ég keyri á þeim hraða þá er allt í lagi að vera á smá snúning.
Ég hugsa að ég endi á því að taka stórt drif úr evo og breyta því svo í 3.45...

Er annars ekki oftast talað um að turbo bílar eigi að vera með að vera með hærra hlutfall en n/a bílar?