bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 17. Jun 2025 22:20

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 10 posts ] 
Author Message
 Post subject: Olíusmit e36 320 M50
PostPosted: Sun 01. Apr 2012 22:58 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 06. May 2006 01:21
Posts: 89
Location: Reykjavík
Sælir.

Ég kíkti á minn gamla 320 bíl áðan fyrir vin minn sem keypti hann af mér og sá þá að hann er að smita olíu sem virðist koma neðarlega hægramegin frá mótornum og dropar niðrá pústgreinina.
Því fylgir svo þessi frábæri olíubruni og lykt og allur pakkinn.
Þetta er í örlitlu magni og átti ég frekar erfitt með að sjá hvaðan þetta kæmi.
Ekki langt síðan að ég skipti um ventlalokspakkningu og virðist allt þurrt þar í kring.
Einnig virðist ekkert smit í kringum olíukvarða enda er hann vinstra megin.

Hvaðan mynduð þið halda að lekinn gæti komið ?
Gæti verið að heddpakkning sé rifin og olía sé að smitast meðfram henni ?
Bíllinn hitnar líka bara 1/3 en ekki uppí helming eins og gerist yfirleitt.
Það er náttúrulega möguleiki á að vatnslásinn sé fastur opinn sem sé að valda því.
Miðstöðin hitnar eðlilega.
Það vantaði tæpan líter á vatnskassann.

Væri gott að fá ykkar álit á þessu, ekkert virtist athugarvert við gang bílsins, útblástur né kraft.

Aðalspurningin er hvað gæti verið að valda olíusmiti þarna hægramegin frekar neðarlega við mótorinn.

_________________
BMW e39 525D ´2001
BMW e36 323i '96
BMW e36 320i '92 - Seldur
BMW e36 316i '95 - Seldur


Last edited by geirlaugur on Mon 09. Apr 2012 11:41, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Apr 2012 16:59 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 06. May 2006 01:21
Posts: 89
Location: Reykjavík
Enginn sem hefur neina tillögu ?

_________________
BMW e39 525D ´2001
BMW e36 323i '96
BMW e36 320i '92 - Seldur
BMW e36 316i '95 - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Apr 2012 17:03 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 06. May 2006 01:21
Posts: 89
Location: Reykjavík
Eitt í viðbót.
Þegar ég tók olíulokið af þá var hvít slykja í tappanum.
Einnig þegar ég skipti um ventlalokspakkninguna þá var allt þakið í hvítu gumsi.

_________________
BMW e39 525D ´2001
BMW e36 323i '96
BMW e36 320i '92 - Seldur
BMW e36 316i '95 - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Apr 2012 17:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Gæti verið heddpakkning

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 07. Apr 2012 01:20 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Jun 2008 21:24
Posts: 468
Location: Borg óttans
og þess má geta að bíllinn er einungis ekinn um 140.000 km

_________________
BMW e46 320d
Toyhatsu Rocky 38"


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 07. Apr 2012 13:17 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. Jul 2010 20:59
Posts: 451
Location: Reykjavík
ég las einhverntímann að þessi hvíta drulla er ekkert óeðlileg í svona bmw sérstaklega ef þeir standa eitthvað, en um leið og hún fer að verða súkkulaði brún þá er heddpakkning farin..

en ef hitamælirinn nær ekki upp réttum hita þá er vatnslásinn fastur opinn :thup:

_________________
Audi A4 2.0 4sale


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 09. Apr 2012 01:09 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 07. Apr 2008 19:43
Posts: 962
ef olian lekur á pústgreinina myndi ég nú halda að þetta sé nú bara ventlalokspakkningin!

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 09. Apr 2012 11:48 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 06. May 2006 01:21
Posts: 89
Location: Reykjavík
Sælir.

Já, reyndar að þá á þessi bíll það til að standa óhreyfður í langan tíma svo það gæti mögulega verið skýringin á þessari hvítu drullu.
Ventlalokspakkningin sem fór í þennan bíl er úr TB, hef ekki mikla reynslu af þeim pakkningum.
Hef vanalega keypt þessar pakkningar í Kistufelli skipholti, held að gæðin séu töluvert meiri á pakkningunum sem þeir eru að selja.

Myndi samt halda að miðstöðin myndi hitna mjög seint ef vatnslásinn er fastur opinn, en það er kannski möguleiki að hann sé fastur hálf opinn eða eitthvað þessháttar.

_________________
BMW e39 525D ´2001
BMW e36 323i '96
BMW e36 320i '92 - Seldur
BMW e36 316i '95 - Seldur


Last edited by geirlaugur on Mon 09. Apr 2012 17:44, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 09. Apr 2012 12:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Posts: 5509
Location: 108 Reykjavík
Hvaða vitleysa, fínar pakkningar frá TB.... Gleymdirðu kannski að líma með pakkningunni?

_________________
Ódýrir OEM Bosch súrefnisskynjarar til sölu!

Vantar þig aðstoð við að panta af ebay eða annarstaðar á netinu? Sendu mér PM.

1994 BMW E36 332i sedan
1991 Chevrolet Camaro Z28
1982 Toyota Carina A60
2005 Ford Fiesta ST


Svezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 09. Apr 2012 17:41 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 06. May 2006 01:21
Posts: 89
Location: Reykjavík
Jájá, þær eru eflaust ágætar.
Ég límdi allveg örugglega ekki með pakkningunni sjálfri, gæti verið að ég hafi sett smá með hálfmánanum aftan við hvalbak.
Þannig hef ég yfirleitt gert þetta og aldrei klikkað.

Það virðist allt skraufa þurrt meðfram ventlalokspakkningunni.
Olían sem dropar er að fara niður á pústgreinina bara allveg fremst þar sem hún byrjar í húddinu.
Það er mjög erfitt að sjá hinsvegar hvort það sé eitthvað að smita með hálfmánanum við hvalbakinn.
Þyrfti að prófa að þjöppumæla bílinn og sjá hvað kemur útúr því, ef það kemur eðlilega út þá athuga ég ventlalokspakkninguna ef ekki eru aðrar tillögur.

_________________
BMW e39 525D ´2001
BMW e36 323i '96
BMW e36 320i '92 - Seldur
BMW e36 316i '95 - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 10 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group