bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Olíusmit e36 320 M50 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=55881 |
Page 1 of 1 |
Author: | geirlaugur [ Sun 01. Apr 2012 22:58 ] |
Post subject: | Olíusmit e36 320 M50 |
Sælir. Ég kíkti á minn gamla 320 bíl áðan fyrir vin minn sem keypti hann af mér og sá þá að hann er að smita olíu sem virðist koma neðarlega hægramegin frá mótornum og dropar niðrá pústgreinina. Því fylgir svo þessi frábæri olíubruni og lykt og allur pakkinn. Þetta er í örlitlu magni og átti ég frekar erfitt með að sjá hvaðan þetta kæmi. Ekki langt síðan að ég skipti um ventlalokspakkningu og virðist allt þurrt þar í kring. Einnig virðist ekkert smit í kringum olíukvarða enda er hann vinstra megin. Hvaðan mynduð þið halda að lekinn gæti komið ? Gæti verið að heddpakkning sé rifin og olía sé að smitast meðfram henni ? Bíllinn hitnar líka bara 1/3 en ekki uppí helming eins og gerist yfirleitt. Það er náttúrulega möguleiki á að vatnslásinn sé fastur opinn sem sé að valda því. Miðstöðin hitnar eðlilega. Það vantaði tæpan líter á vatnskassann. Væri gott að fá ykkar álit á þessu, ekkert virtist athugarvert við gang bílsins, útblástur né kraft. Aðalspurningin er hvað gæti verið að valda olíusmiti þarna hægramegin frekar neðarlega við mótorinn. |
Author: | geirlaugur [ Fri 06. Apr 2012 16:59 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
Enginn sem hefur neina tillögu ? |
Author: | geirlaugur [ Fri 06. Apr 2012 17:03 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
Eitt í viðbót. Þegar ég tók olíulokið af þá var hvít slykja í tappanum. Einnig þegar ég skipti um ventlalokspakkninguna þá var allt þakið í hvítu gumsi. |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 06. Apr 2012 17:09 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
Gæti verið heddpakkning |
Author: | HaffiG [ Sat 07. Apr 2012 01:20 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
og þess má geta að bíllinn er einungis ekinn um 140.000 km |
Author: | krayzie [ Sat 07. Apr 2012 13:17 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
ég las einhverntímann að þessi hvíta drulla er ekkert óeðlileg í svona bmw sérstaklega ef þeir standa eitthvað, en um leið og hún fer að verða súkkulaði brún þá er heddpakkning farin.. en ef hitamælirinn nær ekki upp réttum hita þá er vatnslásinn fastur opinn ![]() |
Author: | x5power [ Mon 09. Apr 2012 01:09 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
ef olian lekur á pústgreinina myndi ég nú halda að þetta sé nú bara ventlalokspakkningin! |
Author: | geirlaugur [ Mon 09. Apr 2012 11:48 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
Sælir. Já, reyndar að þá á þessi bíll það til að standa óhreyfður í langan tíma svo það gæti mögulega verið skýringin á þessari hvítu drullu. Ventlalokspakkningin sem fór í þennan bíl er úr TB, hef ekki mikla reynslu af þeim pakkningum. Hef vanalega keypt þessar pakkningar í Kistufelli skipholti, held að gæðin séu töluvert meiri á pakkningunum sem þeir eru að selja. Myndi samt halda að miðstöðin myndi hitna mjög seint ef vatnslásinn er fastur opinn, en það er kannski möguleiki að hann sé fastur hálf opinn eða eitthvað þessháttar. |
Author: | gardara [ Mon 09. Apr 2012 12:16 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
Hvaða vitleysa, fínar pakkningar frá TB.... Gleymdirðu kannski að líma með pakkningunni? |
Author: | geirlaugur [ Mon 09. Apr 2012 17:41 ] |
Post subject: | Re: Olíusmit e36 320 M50 |
Jájá, þær eru eflaust ágætar. Ég límdi allveg örugglega ekki með pakkningunni sjálfri, gæti verið að ég hafi sett smá með hálfmánanum aftan við hvalbak. Þannig hef ég yfirleitt gert þetta og aldrei klikkað. Það virðist allt skraufa þurrt meðfram ventlalokspakkningunni. Olían sem dropar er að fara niður á pústgreinina bara allveg fremst þar sem hún byrjar í húddinu. Það er mjög erfitt að sjá hinsvegar hvort það sé eitthvað að smita með hálfmánanum við hvalbakinn. Þyrfti að prófa að þjöppumæla bílinn og sjá hvað kemur útúr því, ef það kemur eðlilega út þá athuga ég ventlalokspakkninguna ef ekki eru aðrar tillögur. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |