bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Smá spurning um blæju bmw
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=5588
Page 1 of 2

Author:  BMW3 [ Tue 20. Apr 2004 22:52 ]
Post subject:  Smá spurning um blæju bmw

Er kaldara í blæju bmw og leka þeir ekki frekar ég meina þá eru þeiri ekki mikið óþéttari enn venjulegur 2 eða 4 dyra bmw?

Author:  Kristjan [ Tue 20. Apr 2004 22:55 ]
Post subject: 

Ég myndi nú halda að miðstöðvarnar virkuðu alveg jafn vel í blæju bimmum og þeim með þaki.

Author:  Alpina [ Tue 20. Apr 2004 23:04 ]
Post subject:  Re: Smá spurning um blæju bmw

BMW3 wrote:
Er kaldara í blæju bmw og leka þeir ekki frekar ég meina þá eru þeiri ekki mikið óþéttari enn venjulegur 2 eða 4 dyra bmw?


Að öllum líkindum eru þeir ekki eins þéttir og 2/4 D en ,,,arnib,, og gstuning eru ,,,,,menirnir til að svara þessu,

ps........E30 325iC er búinn að vera ,,,,,,,,TRAUM AUTO,,,,,,,,,,, in vielen jahre hjá mér,,,,,,,,, sehr geplegt einstück..... óskast




ATH,,,,,,,verð skiptir ekki máli

Sveinki................BLÆJA

Author:  arnib [ Tue 20. Apr 2004 23:48 ]
Post subject:  Re: Smá spurning um blæju bmw

BMW3 wrote:
Er kaldara í blæju bmw og leka þeir ekki frekar ég meina þá eru þeiri ekki mikið óþéttari enn venjulegur 2 eða 4 dyra bmw?


Þeir eru ekki kaldari nei.

Miðstöðin í blæjubílum (amk þeim tveim sem ég hef átt) virkar betur heldur miðstöðvar í bílum með hörðu þaki, enda eru þeir sennilega með heitari vatnslás eða álíka einmitt í þeim tilgangi.

Auðvitað leka þeir frekar heldur en hinir, en leka er hægt að laga :)
Minn bíll lekur örfáum dropum meðfram gluggalistum þegar rignir eins og "hellt sé úr fötu", og þá er ég að tala um verulegt vatnsfall!

Annars alveg solid.

Eina sem mér þykir leiðinlegt er vindgnauðið, en þegar verið er að keyra á töluverðum hraða úti á landi og það er hvasst úti þá er frekar mikil læti!

But it's all good og all worth it, fyrir utan að ef þetta pirrar mann OF mikið getur maður alltaf keypt sér harðtopp! 8)

Author:  Thrullerinn [ Tue 20. Apr 2004 23:54 ]
Post subject: 

Ég er á mínum öðrum blæjubíl, þeir hafa báðir verið u.þ.b. þrefalt fljótari
að hitna heldur en þessi týpíski jeppi.

Hef aldrei lent í því að þær láku (þó svo að ég hafi keyrt í gegnum þrjá
vetur)

Það er gargandi misskilningur að blæjubílar séu kaldir og blautir...

Eina böggið eru bölvuðu nagladekkin, það heyrist svo hátt í þeim í gegnum
blæjuna...

Author:  arnib [ Tue 20. Apr 2004 23:55 ]
Post subject:  Re: Smá spurning um blæju bmw

arnib wrote:
Minn bíll lekur örfáum dropum meðfram gluggalistum þegar rignir eins og "hellt sé úr fötu", og þá er ég að tala um verulegt vatnsfall!


Svo þetta misskiljist ekki:::

Hann lekur örfáum dropum,
rigningin sjálf þarf að vera eins og hellt sé úr fötu :)

:roll:

Author:  Jss [ Tue 20. Apr 2004 23:56 ]
Post subject: 

Thrullerinn wrote:
Ég er á mínum öðrum blæjubíl, þeir hafa báðir verið u.þ.b. þrefalt fljótari
að hitna heldur en þessi týpíski jeppi.

Hef aldrei lent í því að þær láku (þó svo að ég hafi keyrt í gegnum þrjá
vetur)

Það er gargandi misskilningur að blæjubílar séu kaldir og blautir...

Eina böggið eru bölvuðu nagladekkin, það heyrist svo hátt í þeim í gegnum
blæjuna...


Þá er líka bara um að gera að sleppa bölvuðum nagladekkjunum. ;)

Author:  gstuning [ Wed 21. Apr 2004 00:08 ]
Post subject: 

Ég átti ´87 325i í 3ár,

Fyrsti veturinn var flottur
ekkert mál flott allt samann

Seinni vetur,, gúmmíð fannst veðráttan ekki sniðug og það lak pínu pínu pínu þegar maður liggur við keyrði í sjóinn

Seinasti veturinn ,, lak soldið illa,, sérstaklega því að ég óvart stóð upp í bílnum einn skiptið þegar ég var að þrífa og vesenast og reyf saum sem liggur yfir blæjuna, þannig að það opnuðust slatti af litlum götum,, en á endanum þá var ég búinn að fixa þetta með fínuefni sem ég man ekki hvað heitir

Á sumardegi :

Ég elskaði að vera með toppinn niðri allann daginn, þegar maður var niðri í bæ og bara allstaðar,, þá veit maður hvað það er að eiga blæjubíl,,
Sérstaklega að labba að bílnum eftir að hafa setið útí einn með toppinn niðri,,


Hardtop er málið fyrir íslenskar aðstæður,

Einnig , þar sem að ég var með háværasta púst sem hefur verið sett undir BMW á íslandi þá get ég sagt þér að tala samann í honum var ekki hægt þá, hvað þá á brautinni,, bara quiet time þar,,
en á endanum var þetta alveg lifanlegt,,

Ég mæli ekki með háværu pústi,,

Ég man eitt skipti þegar ég var alveg aleinn í bílnum á geðveikum sumar degi og voða fáir á reykjanesbrautinni,, að blasta í bæinn
Að vera fyrir aftann einhvern kannski 200m smella honum bara í 4gír,, kannski vera á svona 140kmh,, og svo blasta framúr
Finna fyrir því að vera úti...............
Finna alla hröðunina á veginum við hliðina á sér............
Og sweet 6 cyl Mpower hljóðið úr pústinu í háu snúningunum.........

OMG.............

Ein besta tilfinning sem ég hef upplifað EVER!!

Ég sver það að ég fæ mér svona bíl aftur,,
Bara aðeins öðruvísi en síðast,,

M60 Power ;)

Author:  Thrullerinn [ Wed 21. Apr 2004 00:15 ]
Post subject: 

gstuning wrote:

Á sumardegi :

Ég elskaði að vera með toppinn niðri allann daginn, þegar maður var niðri í bæ og bara allstaðar,, þá veit maður hvað það er að eiga blæjubíl,,
Sérstaklega að labba að bílnum eftir að hafa setið útí einn með toppinn niðri,,


Sammála, mæli með að fólk prófi allavega einu sinni á ævinni að keyra eiga blæjubíl, það er svolítið gaman, bara eitthvað við það....
Lenti reyndar einu sinni í því að fugl skeit á farþegasætið, ekki gaman.

Author:  arnib [ Wed 21. Apr 2004 00:19 ]
Post subject: 

Magnað!

Ég hef oft spáð í því að það gæti gerst eitthvað slíkt, en ég hef blessunarlega verið heppinn :)

Author:  BMW3 [ Wed 21. Apr 2004 00:53 ]
Post subject: 

ég hef heyrt soldið um það að blæjubílar eru oft kaldir sérstaklega á veturnar og leka og soldill raki. ég hef sjálfur ekki átt blæjubíl en það er ágætt að vera buinn að kynna sér þetta áður en maður fer að fá sér blæjubíl :wink:

Author:  Kristjan [ Wed 21. Apr 2004 04:07 ]
Post subject: 

BMW3 wrote:
ég hef heyrt soldið um það að blæjubílar eru oft kaldir sérstaklega á veturnar og leka og soldill raki.


Þetta eru sennilega bara kerlingabækur, sögur sem öfundsjúkir Toyota eigendur hafa spunnið upp um blæjubíla.

Author:  BMW3 [ Wed 21. Apr 2004 05:38 ]
Post subject: 

við skulum nú ekki gera grín af Toyota eigendum Palli frændi á Toyota umboðið á Nýbílavegi :wink:

Author:  Spiderman [ Wed 21. Apr 2004 12:04 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
BMW3 wrote:
ég hef heyrt soldið um það að blæjubílar eru oft kaldir sérstaklega á veturnar og leka og soldill raki.


Þetta eru sennilega bara kerlingabækur, sögur sem öfundsjúkir Toyota eigendur hafa spunnið upp um blæjubíla.


Öfundsjúkir Toyota eigendur :lol: Blæjubílar eru málið, eftir að hafa prófað 5 Miötur og átt MR2 núna í 3 mánuði, þá hef ég tekið þá ákvörðun að eiga alltaf blæjubíl, það sem Gunni sagði um akstur á 140 km/hraða með blæjuna niðri er algjörlega málið. Einu orði sagt stórkostleg upplifun :lol:

Author:  arnib [ Wed 21. Apr 2004 12:09 ]
Post subject: 

Spiderman wrote:
... eftir að hafa prófað 5 Miötur og átt MR2 núna ...


Þú hefur þá prófað meirihlutann af miötum landsins. :D

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/