bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=55153 |
Page 1 of 1 |
Author: | Jói Vidd [ Wed 08. Feb 2012 23:04 ] |
Post subject: | Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! |
Er með 540i E39 sem er með 4.4 v8 1999 Þannig er mál með vexti að bíllinn hjá mér byrjaði á því í haust að vera straumlaus eftir að standa smá (notaði hann mjög lítið í sumar og haust) og svo eitt skiptið sem ég gaf honum start þá kom hann með transmission failsafe í mælaborðið og ég spái ekkert í því, svo prufa ég aðeins seinna að drepa á og setja aftur í gang og þá kemur ekkert.. svo einhverjum dögum seinna gerist þetta aftur og aftur og byrjar að vera oftar straumlaus og svo einn daginn kemur þetta transmission failsafe og airbag ljós í mælaborðið og fer svo seinna.. svo fer ég einn daginn stuttu seinna og versla mér nýjann geymi sem kostaði hvorki meira né minna en 40þ. og er heví stór. Og eftir það dettur bíllinn alltaf í gang, en nokkrum dögun seinna koma bæði þessi ljós aftur og aðgerðarstýrið dettur líka út og tvær stillingar á þurkunum. þetta kemur svona og fer.. svo heldur þetta svona áfram og svo byrjar útvarpið að detta út líka öðruhvoru(stundum virkar að drepa á bíllum og setja í gang aftur) og svo byrjar þetta að aukast frekar en hitt og ég tek eftir því að hann verður alltaf þyngri í gang og einhverjir svona rafmagnsbilanir hér og þar einsog td. þarf ekki að stíga á bremsuna til að taka úr park og hiti í sæti virkar bara stundum og eitthvað svona.. og svo núna þá er hann altaf straumlaus þegar hann er búinn að standa smá (þetta er aukabíll hjá mér, ekkert í daglegri notkun) svo er þetta þannig í dag að það er hátíð ef útvarpið virkar! hvað getur þetta verið? altanitor? Tækniþjónusta bifreiða náði ekki sambandi við tölvuna og bentu mér að fara í eðalbíla eða b&l.. en hafið þið heyrt um eitthvað svipað sem getur líst sér svona? getur verið að hleðslan sé eitthvað tæp og hann slái þá út einhverju rafmagnsdóti? Hjálp, ég er ráðalaus ![]() |
Author: | bErio [ Thu 09. Feb 2012 08:55 ] |
Post subject: | Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! |
Langbest að láta lesa af honum og vona að það komi upp eitthvað þar Annars er bíllinn greinilega að leiða út rafmagni og best væri að skella honum til meistaranna hjá Eðalbilum Getur byrjað á því að láta mæla hvort hann sé að leiða út hjá t.d. rafgeymasölunni i hfj, hef fengið toppþjónustu þar. |
Author: | Zed III [ Thu 09. Feb 2012 09:14 ] |
Post subject: | Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! |
bErio wrote: best væri að skella honum til meistaranna hjá Eðalbilum What he said. |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 09. Feb 2012 09:52 ] |
Post subject: | Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! |
Prófaðu að mæla hleðsluna á alternatornum |
Author: | Danni [ Thu 09. Feb 2012 14:19 ] |
Post subject: | Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! |
Mér finnst þetta hljóma eins og þeta gætu verið tvær bilanir. Annars vegar Final Stage Unit. Prófaðu að googla það. Það koma endalausar rafmangskvillar þega þeir fara. Hinsvegar svissbotn. Þegar hann bilar þá slekkur hann stundum ekki á öllu þegar slökkt er á bílnum og þessvegna fer hleðslan. Sömuleiðis þá kveikir hann ekki á öllum fídusum þegar bíllinn er settur í gang. Ég átti E39 með bilaðan svissbotn og random rafmagnskvilla sem fylgdu því. T.d. var það eins og hjá þér, ef hann stóð í lengri tími varð hann alltaf rafmagnslaus. Stundum varð hann rafmagnsslaus á einni nóttu, stundum eftir viku. Útvarpið var líka með leiðindi. Það slökkti ekki á sér þegar ég drap á bílnum. Ljósin á því slökknuðu en hljóðið var ennþá í gangi. Síðan um leið og inniljósin slökknuðu þá slökknaði á útvarpinu. Spólvörnin og stöðuleikakerfið virkuðu bara stundum. Þegar hann var orðinn low á rafmagni þá kom einmitt svona "Transmission Fail-Safe program" í mælaborðið. En ég segi eins og hinir, farðu með hann í Eðalbíla og fáðu þá til að lesa af honum, þeir hljóta að geta komist að vandamálinu! |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 16. Feb 2012 10:20 ] |
Post subject: | Re: Rafmagnsvesen í E39 540 '99 HJÁLP!! |
eitthvað búinn að finna útúr þessu? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |