bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW lykla vandamál
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=55135
Page 1 of 1

Author:  snik [ Tue 07. Feb 2012 20:54 ]
Post subject:  BMW lykla vandamál

Sælir meðlimir BMW-krafts,
þannig er mál með vexti að bíllinn startar ekki þegar að ég svissa á honum, hef einu sinni lent í þessu áður, beið þá í 30 mínútur og þá sveif hann í gang og núna, u.þ.b. mánuði seinna er þetta aftur að ske nema hann fer ekki í gang. Ég var að velta fyrir mér hvernig væri hægt að laga þetta, skilst að þetta sé lykilinn, fór með lykilinn til Lásasmið Neyðarþjónustunnar að Laugarvegi hann sagði að það "mældist" af lyklinum.

Eitthverjar hugmyndir hvernig ég get reddað þessu án þess að fjárfesta í nýjum lykli?

Mynd af lyklinum,
Image

Author:  HaffiG [ Wed 08. Feb 2012 19:14 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

Þú þarft alltaf að vera með kóða, svo ef kóðinn í lyklinum þínum er ónýtur, þá þarftu að fá þér nýjan lykil með kóða. En áttu bara þennan eina lykil?

Author:  snik [ Wed 08. Feb 2012 20:54 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

já því miður, en frekar asnalegt að bíllinn taki svo bara allt í einu við sér eins og gerðist um daginn. gat ekki svissað á í 30 mínútur, tók allt innan úr lyklinum hreinsaði til og setti saman aftur og þá virkaði það.

ætli að það sé málið að skella smá contact spray innan í? ef það sé þá í lagi..?

Author:  HaffiG [ Wed 08. Feb 2012 21:16 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

Kóðinn er bara kubbur inní lykilinum, kontactsprey gerir lítið í sambandi við hann.
Ég myndi skjóta á að vélartölvan sé bara búin að gleyma lyklinum, spurning hvort IH getur lesið hann inn fyrir þig aftur, ég bara þekki það ekki alveg..

Author:  HaffiG [ Wed 08. Feb 2012 21:19 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

Pæling annars, startar bíllinn og fer ekki í gang eða bara gerist ekki rassgat þegar þú snýrð lyklinum?
Ef það gerist ekki neitt, þá er þetta alveg pottþétt ekki lykillinn. Hann myndi snúa startaranum, bara ekki taka við sér..

En ef það mælist af lyklinum, væri þá ekki líklegast að þetta væri sensorinn í svissinum? Spurning að tékka pluggin á því

Author:  cali [ Wed 08. Feb 2012 21:48 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

...

Author:  HaffiG [ Wed 08. Feb 2012 21:58 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

Nú þekki ég þetta ekki alveg í BMW, en yfirleitt ef kóðinn í lyklinum er fucked, þá startar bíllinn samt, hann bara tekur ekki við sér. Ég myndi skjóta á eitthvað annað en lykilinn.

Author:  cali [ Wed 08. Feb 2012 22:04 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

...

Author:  krayzie [ Thu 09. Feb 2012 13:42 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

Ég hef lent i sama vandamáli nema hann fór alltaf i gang eftir nokkrar tilraunir.. veit ekki hvað þetta er en prófaðu að athuga hvort tengingar á startarann séu í lagi og öryggi/relay.

Sama dæmi skeði þegar eg var með lelegann rafgeymi, þá var bara ekki nóg straumur til að snúa startaranum en öll ljósin virkuðu.

Author:  IngóJP [ Wed 22. Feb 2012 18:05 ]
Post subject:  Re: BMW lykla vandamál

Hef lennt í þessu, Reif startaran úr þreif upp tengingar og flötinn sem hann snertir á blokkinni og bíllinn er ennþá rock solid í dag

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/