bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
e36 fer ekki í gang https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=5512 |
Page 1 of 2 |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 15:33 ] |
Post subject: | e36 fer ekki í gang |
Sælir, nú fer bíllinn ekki í gang hjá mér ![]() Hann hefur alltaf dottið í gang í fyrsta, en núna bara startar hann endalaust og það kemur ekki einu sinni hökt eða nein merki um að hann sé á lífi. Vitið þið um einhverja þekkta bögga í þessum bílum? Er eitthvað sem fer allt í einu og lýsir sér með svona sviplegu andláti? Ég var að velta því fyrir mér hvort að kerti og/eða kertþræðir væru málið. Með fyrirfram þökk... |
Author: | gstuning [ Fri 16. Apr 2004 15:52 ] |
Post subject: | |
Nú ert best að byrja á að athuga hvort að það sé eftirfarandi Öll plögg í vélarrými vel fest Og allt þurrt Rafgeymír í lagi : láta mæla hann Bensín dæla fari í gang að það sé neisti o.s.frv |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 15:58 ] |
Post subject: | |
Hann startar alveg eins og hann fái borgað fyrir það... En hvernig sé ég hvort að bensíndælan fari í gang? ![]() |
Author: | vallio [ Fri 16. Apr 2004 16:30 ] |
Post subject: | |
wow, ekki gaman að lesa þetta... var búnað heyra um annan BMW e36 sem lét svona, bara allt í einu fór hann ekki í gang (sama hvað). svo kom eigandinn aftur að honum svona 2 klst. síðar og var með einhvern sem ætlaði að skoða þetta fyrir hann þá bara hrökk hann í gang í fyrsta ![]() ...--en það var að vísu eftir þvott--... gæti verið að eitthvað hafi blotnað þó að það ætti ekki að gerast...... en því miður veit ég ekkert, svo mig langar bara að segja eitt.... prufaðu að setja bensín á hann ![]() ![]() ![]() nei, ok sorry.... |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 16:43 ] |
Post subject: | |
vallio wrote: prufaðu að setja bensín á hann ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | hlynurst [ Fri 16. Apr 2004 17:21 ] |
Post subject: | |
Getur ekki verið að startarinn skjótist ekki fram eins og hann á að gera og þú þurfir að liðka hann aðeins? |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 20:03 ] |
Post subject: | |
Nei, hann startar alveg.. allt snýst og þannig, það er bara eins og hann kveiki ekki. Lýsir sér alveg eins og maður sé að reyna að starta honum bensínlausum ![]() |
Author: | hlynurst [ Fri 16. Apr 2004 20:12 ] |
Post subject: | |
Ég er að meina að hann snúist en skjótist ekki fram... grettir wrote: Nei, hann startar alveg..
Er ekki í lagi með bílinn þá. ![]() |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 20:28 ] |
Post subject: | |
hlynurst wrote: Ég er að meina að hann snúist en skjótist ekki fram...
grettir wrote: Nei, hann startar alveg.. Er ekki í lagi með bílinn þá. ![]() Ef hann færi í gang, þá væri ég kátur ![]() Nei, sko. Startarinn snýr vélinni, en hún fer ekki í gang. Þannig að það er nóg rafmagn, startarinn er í lagi en það kviknar ekki í neinu bensíni. Ég er að spá í að hringja í Krók og fá hann heim blessaðan. Mér er meinilla við að láta hann standa uppi í vinnu alla helgina ![]() Mikið af óþekku fólki til sjáiði.. |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 20:30 ] |
Post subject: | |
Já ég sé núna að þú ert að meina hvort ég heyri bara startara hávaða.. ![]() Nei, vélin snýst.. lét nú vinnufélaga minn fylgjast með því, hehe. Sem ég var búinn að bjóða far heim, by the way. Frekar vandræðalegt því ég var nýbúinn að segja honum hversu magnaður bíll þetta væri ![]() |
Author: | gunnar [ Fri 16. Apr 2004 21:00 ] |
Post subject: | |
Þarftu endilega að láta Krók draga hann? Er nokkuð mál að binda bara spotta í hann og kippa honum þannig heim greyið vesalingnum ? |
Author: | grettir [ Fri 16. Apr 2004 21:11 ] |
Post subject: | |
Hann er sjálfskiptur og það eru heilir 10 km í vinnuna, svo ég legg eiginlega ekki í það. Bæði uppá skiptinguna og svo eru þeir hálf bremsulausir og illa stýrandi þegar þeir eru ekki í gangi. Svo maður verður bara að blæða... annars er ég búinn að plata vin minn til að koma og kíkja á þetta með mér á eftir. Aldrei að vita nema að hann detti í gang *krossa fingur* Vona bara að hann sé ekki kominn með einhverja bilunarveiki. Er kominn í tæp 230 þúsund km ("91 módel) og alveg viðbúið að maður þurfi að fara að endurnýja hitt og þetta. Boddíið er nefnilega eins og nýtt, spurning um að smella bara stærri vél í græjuna. |
Author: | Friðrik [ Fri 16. Apr 2004 23:05 ] |
Post subject: | |
ef það kom ekkert hökt í byrjun og startarinn gengur fínt þá er þetta örruglega kveikibúnaðurinn þar sem eitthvað bensín væri á vélinni. ég myndi giska á einhverja þræði eða spennukeflið. ekkert mál að tékka á þessu tekur bara eitt kerti úr og startar lætur einhvern horfa á blossan (það á samt að vera dáldið mikill blossi ef þú ert með mæli þá minnir mig að það eigi að vera eitthvað 50000 volt en ég hengi mig nú samt ekki á því ![]() |
Author: | ///MR HUNG [ Fri 16. Apr 2004 23:33 ] |
Post subject: | |
Skoða öryggi er góð byrjun ![]() |
Author: | Dr. E31 [ Fri 16. Apr 2004 23:42 ] |
Post subject: | |
Er háspennukefli tengt og í lagi (ef þetta er 318 eða 316)? Þú ættir að heyra í bensíndælunni í svona 2 sek. þegar þú svissar á bílnum. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |