Page 1 of 2

þarf að finna rafmagn í e36

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 09:27
by XenzeR
Sælir

ég var að fá mer magnara í bimman og ég er með hann í skottinu, en ég var að spá hvort það væri hægt að finna rafmagn fyrir hann, eða þarf ég að leiða inn í húddið og í rafgeimirinn ?

kv
XenzeRinn

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 10:06
by flamatron
Er hann ekki í skottinu..?

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 10:12
by Jss
flamatron wrote:Er hann ekki í skottinu..?


Hann er í skottinu á flestum ef ekki öllum 6 cyl. bílum.

Það borgar sig nú samt (ef geymirinn er í vélarrýminu að leggja sér fyrir magnarann, ekki "stela" rafmagni frá öðrum hlutum.

rafmagn

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 10:45
by XenzeR
jú ég fann rafmagn fyrir hann í skottinu hjá afturljósunum og það var ekki í notkun en vandamálið er það að það er síspenna á því

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 11:00
by saemi
En ég segi nú bara aftur, er ekki rafgeymirinn í skottinu!!!

rafgeymir

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 11:25
by XenzeR
Rafgeimirinn er ekki í skottinu

.

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 11:25
by Wolf
Þú skalt ALLS EKKI tengja magnarann inná ljós !!!! Þó að þetta væri bara lítill magnari, þá getur hann dregið heilmikinn straum ef þú ert eitthvað að keyra hann. Sem dæmi ef þetta er 500W magnari, og þú keyrir hann á ca 2/3 afli (333w) þá er hann að draga tæp 28 Amper, sem er ALLT ALLT ALLT OF MIKIÐ, fyrir leiðarann sem liggur að ljósinu, þ.e þú átt eftir að kveikja í einhverju og skemma eitthvað!!!! Þú ættir að lágmarki að leggja 10q leiðara að rafgeyminum hvar sem hann er, helst 16q (það fer eftir stærð magnara hvað leiðarinn þarf að vera sver. (get reiknað það út fyrir þig ef þú segir hvað hann er stór) En að "stela" rafmagni einhverstaðar frá er algjör vitleysa :!: :!: :!: Góðar stundir :) ps, 525i E34 bíllinn minn var með geyminn í húddinu.....

Re: rafgeymir

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 12:32
by Gunni
XenzeR wrote:Rafgeimirinn er ekki í skottinu


Er þetta 316/318 ??

318inn sem ég átti var með geyminum í húddinu :( Mér finnst miklu skemmtilegra að vera með hann í skottinu!

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 12:48
by flamatron
Sérstaklega þegar maður er að tengja einhverjar græjur, stutt að fara..!! :!:

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 13:35
by gstuning
Það gæti verið rafmagn eftir í leiðslunum sem fylgja magnaranum

eða þú getur farið á bensíntöð og látið fylla rafmagnskaplanna af rafmagni, bara muna að setja 12V straum á kaplanna svo að þú skemmir ekki neitt,

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 14:46
by Svezel
Alltaf að draga nýja öfluga kapla í magnara alla leið frá geimi nema það sé búið að draga græjukapla fyrir.

gstuning wrote:Það gæti verið rafmagn eftir í leiðslunum sem fylgja magnaranum

eða þú getur farið á bensíntöð og látið fylla rafmagnskaplanna af rafmagni, bara muna að setja 12V straum á kaplanna svo að þú skemmir ekki neitt,


Þetta var vonandi spaug...

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 15:16
by gstuning
Afhverju

Getur líka fengið rafmagn hjá félaga, bara ekki klára geyminn hans

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 15:36
by Svezel
Ok þú ert semsagt að tala um að hlaða rafgeyminn og muna að hlaða við 12V SPENNU

bara smá miskilningur :)

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 15:43
by gstuning
Nei enginn misskilningur

Hlaða kapplana,, alveg eins og að hlaða rafgeymir,

PostPosted: Fri 16. Apr 2004 15:44
by oskard
:lol: