bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E36 mælaborð dettur út https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=54865 |
Page 1 of 1 |
Author: | krayzie [ Sat 21. Jan 2012 15:26 ] |
Post subject: | E36 mælaborð dettur út |
Það er smá vesen í E36 hjá mér, þetta er 320 bíll bsk 1993 og þetta lýsir sér þannig að ég fer út að keyra og allt í góðu, nema hvað að allir mælar í mælaborði (bensínmælir, snúningsmælir, hraðamælir og hitamælir) detta allir niður í smá stund en ljósin loga áfram, svo detta þeir oftast alltaf inn aftur nokkrum sekundum seinna og akkurat þegar þeir poppa aftur inn þá kviknar handbremsuljósið og eitthvað annað ljós en það hverfur eftir 2-3 sek og allt orðið eðlilegt aftur, þetta hefur engin áhrif á aksturinn. þetta gerist mjög oft, stundum í nokkrar sek, stundum alveg í 10 minutur, virðist skipta litlu málið hvernig ég keyri eða hvort ég banka á mælaborðið, þetta er algjörlega sjálfstætt og gerist stundum meðan bíllinn er kyrrstæður. Ég prófaði að taka mælaborðið úr og skoða það bak og fyrir, ásamt því að skoða plöggin fyrir það og plögga þeim vel í en það breytti engu og ég fann ekkert að þessu. Þetta skiptir ekki miklu máli þar sem þetta hefur engin áhrif á aksturinn, en það fer vel í mínar fínustu að geta ekki kíkt á mælana hvenær sem er, ég er búinn að prófa að leita á netinu en ég finn ekkert um þetta. Hefur einhver lent í þessu eða svipuðu? Allar skoðanir vel þegnar |
Author: | Zed III [ Sat 21. Jan 2012 20:40 ] |
Post subject: | Re: E36 mælaborð dettur út |
Búinn að skoða öll öryggi og ert þú búinn að setja annað mælaborð í og sjá hvort þetta hegðar sé eins ? Það myndi amk útiloka mælaborðið sjálft. |
Author: | krayzie [ Sat 21. Jan 2012 22:34 ] |
Post subject: | Re: E36 mælaborð dettur út |
öll öryggi eru í lagi já en nei hef ekki prófað annað mælaborð, fer í það að finna annað.. ef svo færi að mælaborðið sjálft væri bara ónýtt/lélegt og þyrfti að skipta því út, get ég þá einhvernveginn haldið km stöðunni áfram í nýja mælaborðinu? |
Author: | krayzie [ Sat 28. Jan 2012 18:00 ] |
Post subject: | Re: E36 mælaborð dettur út |
gæti þetta verið sambandsleysi í hraðamælaplögginu á drifinu sem veldur því að allir mælar í mælaborði detta út? |
Author: | Misdo [ Sat 28. Jan 2012 18:22 ] |
Post subject: | Re: E36 mælaborð dettur út |
Þetta var alltaf að gerast á 318 sem ég átti og mér var sagt á sínum tíma að Ég þyrfti að kaupa nýtt því mitt væri bilað/ónýtt |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |