Page 1 of 1

BMW VIN Decoder !

PostPosted: Fri 10. Jan 2003 20:08
by oskard
Langaði að benda þeim á þetta sem ekki hafa séð þetta áður:

http://www.bmw-z1.com/VIN/VINdecode-e.cgi

Alltaf gaman að skoða svona um bílinn sinn :D

PostPosted: Fri 10. Jan 2003 20:30
by Bjarki
Veit einhver hvenær verksmiðjur skipta á milli árgerða? Þegar skráðar voru árgerðir í skráningarskírteini þá gat bíll komið á götuna í lok árs en verið af árgerð næsta árs svona sem dæmi. Minn kom af færibandinu 11/89 en þó tala ég alltaf um 90 módel, hann var skráður hér á þessari eyju 2/90.

PostPosted: Fri 10. Jan 2003 22:23
by Alpina
Í Fahrzügbréfinu(þýskir-bílar) kemur fram dagsetning og mánuður
bílsins,, td. 020497 allir bílar í Þýskalandi á bílasölum eru með þennan skráninga ferill... ekki framleiddur í nov.92 (11.92)
og seldur sem 93 árgerð ( eins og er gert hérlendis með marga bíla)


Sv.H.

732i versus 735i ??

PostPosted: Fri 10. Jan 2003 23:40
by Þórður Helgason
Takk fyrir slóðina á VIN decoderinn.

Þar kemur fram að minn bíll er bara 732i, ekki 735i eins og hann er skráður. Kemur reyndar ekki á óvart að vitlaus skráning sé til.

En að hann skuli vera 5 gíra bsk, (kom 82) og með vacuum tökkunum og vacuum í samlæsingunum, ???

Hurru, auðvitað hefur innflytjandinn bara hnoðað gamla VIN plötu í hann úti (einfaldara en að færa innréttinguna og kassann á milli), kanna það nánar þegar ég kemst næst í geymsluna. Það er ekki að sjá af hreyft hafi verið við neinu, það sést nú yfirleitt. Km staðan er 823655 km, það er reyndar grunsamlegt...

Enn er von.....

Re: 732i versus 735i ??

PostPosted: Fri 10. Jan 2003 23:53
by arnib
Þórður Helgason wrote:Km staðan er 823655 km, það er reyndar grunsamlegt...


Vá hvað það er Óóóótrúlega mikið! :-)

PostPosted: Sat 11. Jan 2003 00:22
by oskard
Þú átt að geta fundið VIN númerið á nokkrum stoðum í bílnum þínum
þetta er einhvað sem ég fann á netinu:

1. Engine compartment beside the right wiperarm.
2. On a lable located inside the left four door opening.
3. Stamped on a metal strip on the dash.
4. In extreme driver side lover corner of the windshield.

Also stamped on body componentsm engine and transmission !

Reyndu allavegana að finna tvo og sjáðu hvort þau stemmi !

PostPosted: Sat 11. Jan 2003 11:42
by gstuning
Óskar,

Þetta gildir bara um ameríku selda bíla,

okkar euro hafa bara í húddinu, fyrir ofan húddið, svo veit ég ekki meir,

PostPosted: Sat 11. Jan 2003 11:50
by oskard
Það meikar svosem sens ég var ekkert að finna þetta
neinstaðar annarstaðar á mínum bíl en einmit fyrir
ofan húddið í myrkrinu í gær :lol:

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 08:12
by iar
Sælir.

Þessi vefsíða er snilld en ég var að spá hvort þið vitið nokkuð um fleiri svona græjur á netinu, eða gögn til að lesa úr VIN númerum? Mig vantar að dobbeltékka framleiðsludag á einum bíl.

Eru bílarnir (nýlegir amk.) merktir einhversstaðar með framleiðsludegi? Eða framleiðslumánuði og ári þ.e.a.s.

Mig minnir að hafa lesið að þessar upplýsingar og fleiri séu aftan á aftursætunum en það er ekki beint mjög aðgengilegt án mikils vesens. :?

PostPosted: Tue 18. Feb 2003 09:18
by Bjarki
Hehe :D Ég þarf að taka afturbekkinn úr bílnum mínum til að komast í rafgeymirinn og eitthvað fleira rafmagnsdrasl þar undir og neðan á bekkinn er stimplað framleiðslumánuður sætisins sem er sá sami og framleiðslumánuður bílsins.

PostPosted: Fri 21. Feb 2003 22:23
by morgvin
samlvæmt þessu er bílinn minn sjálfskiptur og framleiddur 06/1994 svolítil villa.

PostPosted: Fri 21. Feb 2003 22:59
by Halli
hvað þýðir þetta
catalyzer
vehicle code
getrag 248/19

PostPosted: Sat 22. Feb 2003 02:41
by DXERON
Getrag er það ekki gírkassinn.....?
catalyzer er hvarfakútur held ég...

vehicle code er bara verksmiðjunúmerið held ég...