Page 1 of 2

Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc.)

PostPosted: Fri 06. Jan 2012 19:22
by ppp
Ég s.s. fékk DSC+Handbremsu ljósin í gang í miðjum akstri núna í gær í þessum blessaða snjóstormi sem gekk yfir. Ég lét svo lesa af honum í dag, og fyrst um sinn þá voru errors á öllum fjórum wheel speed sensors og steering angle sensornum. Eftir að hafa strokað þessar villur út og keyrt niður og upp götuna hjá þeim þá var það bara steering angle sensorinn eftir sem að gaf error.

Gott og vel. Þeir segja mér að það þurfi þá að panta nýjan frá umboðinu -- einhver 70+þús kall bara hluturinn. Ég greenlighta það með smá fýlusvip og hann ætlar að vera í bandi þegar pöntunin kemur.

Svo þegar ég kem heim þá fer ég að googla þetta error, og sé að fólk hefur verið að lenda í því að fá þetta error í snjó, og/eða ef að hjólastilling er ekki 100%, og að þeir hafi getað fixað þetta bara með því að hjólastilla (ef þarf) og recalibratea þennan sensor sem TB var nú nýbúið að panta fyrir mig nýtt.


Með öðrum orðum, þá sýnist mér á því sem ég hef lesið hérna á E46 fanatics og annarstaðar, að það að rífa draslið úr og henda nýju í (sem er svo calibrated) sé ekkert endilega það sniðugasta til að byrja með, heldur að jafnvel skoða hjólastillingu, og að svo calibratea unitið sem er nú þegar í bílnum. Mig líka grunar svolítið að þetta gæti jafnvel verið hjólastilling, því að gatan hjá mér hefur verið með ansi skuggalegum hjólförum síðustu daga, djúp og hörð, og það hefur oft bara verið eins og að keyra á kant.


En það er spurning hvað ég ætti að gera. Kannski að rjúka til þeirra í TB eldsnemma á mánudaginn og láta þá cancella þessa pöntun, og þá láta hjólastilla bílinn og sjá hvort það geri trixið? Það er allavegana ansi blóðugt að vera borga 100+ þúsund í að replacea einhvern part sem er kannski alveg í fínu lagi, og mér finnst að þeir hefðu nú alveg mátt stinga upp á þessu við mig -- EF þetta er rétt sem ég segi hérna. Ég þykist ekki vera neinn expert, ég er bara að lepja upp hérna sem aðrir hafa sagt á erlendu spjallborðunum.



TLDR: Fékk error, fór til TB, þeir segja mér að panta varahlut sem ég geri, en þegar ég fer heim og googla þá sé ég að það þarf kannski ekki.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Fri 06. Jan 2012 19:40
by Angelic0-
Ég fékk reyndar sömu villu frá þeim.... að steering angle sensor væri FUBAR...

Eftir að hafa lesið mig vel til bað ég Jón Bras um að recalibrate-a stýrið fyrir mig og það gerði trixið...

Þetta var nota bene í E60...

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Fri 06. Jan 2012 19:42
by -Siggi-
Ég mundi fara til þeirra aftur og athuga hvort það þeir geti ekki gert recalibration.

Í þeim bílum sem ég hef unnið við svona er hægt að lesa skynjarann og sjá hvort hann virki rétt þegar maður snýr stýrinu.
Það er reyndar ekki BMW.

Mér finnst mjög skrýtið að hjólastilling sé allt í einu off.
Ekki nema þú hafir keyrt á kant eða eitthvað og þá að stýrið sé ekki beint lengur.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Fri 06. Jan 2012 20:01
by ppp
-Siggi- wrote:Mér finnst mjög skrýtið að hjólastilling sé allt í einu off.
Ekki nema þú hafir keyrt á kant eða eitthvað og þá að stýrið sé ekki beint lengur.


Ég lét draga bílinn sirka 5 metra út úr stæði, yfir gaddfreðinn skafl, en ljósin kviknuðu ekkert strax eftir það. Það er samt spurning hvort það hafi ollið því. Já eða þessi skuggalegu hjólför, sem að eru nú eiginlega bara eins og steypa því að þetta var allt svo gaddfreðið þangað til bara í dag.

Ég tók samt ekki eftir að neitt væri skakkt þegar ég keyrði, en aftur á móti þá var ég ekkert að pæla í hjólastillingu fyrr en ég googlaði þetta. Ég keyri bílinn aftur á eftir, og þá ætla ég að skoða þetta betur.


Þakka svörin.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Mon 09. Jan 2012 09:19
by ppp
Jæja, nú tek ég eftir því þegar ég var að keyra í Eðalbíla að stýrið hjá mér er skakkt um svona 2-3 gráður. Eitthvað sem maður tekur eiginlega ekki eftir nema maður sé spes að spá í því.

Ég á tíma í hjólastillingu á morgun og reikna passlega með því að það + recalibration á sensornum leysi þetta vandamál. Ég s.s. sparaði mér líklega 100 þúsund kall með smá Googli ef það reynist vera lausnin.



Svo annað eitt ef aðrir lenda í þessu síðar meir. Ef stýrið er ekki skakkt, gáið hvort það sé nokkuð mjög lítið loft í einhverju dekki hjá ykkur. Ef það er of mikill snúningsmunur á hjólunum þá getur svona error líka komið upp.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Mon 09. Jan 2012 09:24
by Angelic0-
ppp wrote:Jæja, nú tek ég eftir því þegar ég var að keyra í Eðalbíla að stýrið hjá mér er skakkt um svona 2-3 gráður. Eitthvað sem maður tekur eiginlega ekki eftir nema maður sé spes að spá í því.

Ég á tíma í hjólastillingu á morgun og reikna passlega með því að það + recalibration á sensornum leysi þetta vandamál. Ég s.s. sparaði mér líklega 100 þúsund kall með smá Googli ef það reynist vera lausnin.



Svo annað eitt ef aðrir lenda í þessu síðar meir. Ef stýrið er ekki skakkt, gáið hvort það sé nokkuð mjög lítið loft í einhverju dekki hjá ykkur. Ef það er of mikill snúningsmunur á hjólunum þá getur svona error líka komið upp.


Þetta var akkúrat málið hjá Pabba núna um daginn á E38...

En ég verð að segja að TB hefur farið virkilega hrakandi eftir að Mr. Altmugligtmand hætti að starfa þar... því miður :!:

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Mon 09. Jan 2012 15:38
by Gunnar Þór
Ég fékk þessa villu eftir að skipt var um stýrisenda - hjólastilling lagaði það.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:07
by ppp
Jæja, það var eins og ég var að vona. Kom úr hjólastillingu hjá Pitstop alveg villulaus og ekkert vesen. Eins gott að maður keypti ekki bara þennan 70þús kr varahlut þegjandi.


Annars er það bara þegar maður er búinn að keyra í nokkra daga án DSC í þessari ófærð, og fær það svo aftur í gang sem maður virkilega finnur hvað þetta gerir fáránlega mikið fyrir bílinn. Sérstaklega á opnu drifi.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:27
by Angelic0-
Þetta kom upp hjá Pabba í hálkunni og ófærðinni í dag...

IH gáfu þær skýringar að þetta kúplaði sér út þegar að bremsuvökvinn væri orðinn visst heitur, þetta ætti að koma inn sjálfkrafa aftur...

Vonum að þeir hafi rétt fyrir sér... ekki satt ?

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:37
by ppp
Ég held þú ættir að kaupa þér stýrisskynjara í TB bara til vonar og vara. :lol:

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:38
by Andri Fannar
Angelic0- wrote:Þetta kom upp hjá Pabba í hálkunni og ófærðinni í dag...

IH gáfu þær skýringar að þetta kúplaði sér út þegar að bremsuvökvinn væri orðinn visst heitur, þetta ætti að koma inn sjálfkrafa aftur...

Vonum að þeir hafi rétt fyrir sér... ekki satt ?


Hef oft fengið þetta í snjó og slabbi þegar það er líklegt að það fari eitthvað inn í felgurnar. Fer bara með keyrslu/láta hann standa og skola úr felgunum.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:38
by Andri Fannar
Andri Fannar wrote:
Angelic0- wrote:Þetta kom upp hjá Pabba í hálkunni og ófærðinni í dag...

IH gáfu þær skýringar að þetta kúplaði sér út þegar að bremsuvökvinn væri orðinn visst heitur, þetta ætti að koma inn sjálfkrafa aftur...

Vonum að þeir hafi rétt fyrir sér... ekki satt ?


Hef oft fengið þetta í snjó og slabbi þegar það er líklegt að það fari eitthvað af snjó inn á felgurnar og bremsurnar. Fer bara með keyrslu/láta hann standa og skola úr felgunum.

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Tue 10. Jan 2012 17:38
by Angelic0-
ppp wrote:Ég held þú ættir að kaupa þér stýrisskynjara í TB bara til vonar og vara. :lol:


Ég á reyndar svona gaur á lausu... :)

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Sat 14. Jan 2012 16:26
by Subbi
Ég lenti í þessu sama ,,,, dsc fór af og ég fékk það ekki á með nokkru móti fyrr en eftir að ég kom heim og bíllin kólnaði og ég þurfti að skreppa smá 20 mín seinna þá var allt í þessu fína

Málið er að heilinn sem stjórnar þessu getur sjóðhitnað þegar skriðvörnin er að vinna mjög mikið og spólvörnin er á fullu og þegar það skeður slær þetta kerfi einfaldlega út og verður virkt aftur með því að ýta á takkan og hitinn er orðin eðlilegur

Ég var að koma Suðurstrandaveginn frekar greitt ekið og leikið sér enda einbíla þarna í þæfingsfærð þegar þetta skeði

Prufaði svo í Hálkuni í fyrradag að láta spól og skriðvörnina finna vél fyrir því í innanbæjarakstri og þetta sló út aftur eftir 20 mín í miklum átökum :) en kom inn strax og það fékk að kæla sig og er alveg til friðs í eðlilegum Ömmuakstri :)

Mér finnst bara svo gaman að láta reyna á bílinn og getu hans í hálkuni á Langferðum

40 mín frá Selfoss til Grindavíkur suðurströndina held ég að sé fjári góður tími miðað við glerhálku og þæfing ,en tak það fram að ég mætti einum bíl eftir að kom inn á sjálfan veginn frá Þorlákshöfn að Kísuvík engum eftir það til Grindavíkur

Þetta er snilldarvegur breiður og góður og sparar okkur suðunesjamönnum sem þurfum að skreppa austur fyrir fjall að fara gegnum Reykjavík og Traffíkina þar

Re: Ætli TB hafi ráðlagt mér rétt? Smá saga. (Snjór, DSC etc

PostPosted: Sat 14. Jan 2012 18:51
by slapi
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni