bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Loftþrýstingsskynjarar í felgum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=54593 |
Page 1 of 1 |
Author: | gjonsson [ Wed 04. Jan 2012 01:31 ] |
Post subject: | Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Ég er með smá spurningar varðandi loftþrýstingsskynjara í Mini Cooper R50. Lenti í því í dag að keyra í einhverja holu sem varð nóg til þess að eitt dekkið fór að leka. Það á að vera eitthvað loftþrýstingsskynjarakerfi í bílnum en samt kom engin viðvörun þótt dekkið væri orðið gott sem flatt. Þegar dekkið var tekið af felgunni voru engin ummerki um loftþrýstingsskynjara í ventlinum. Það er hinsvegar ansi fallegur hnappur milli sætana sem á að vera til endurstilla þetta svo eitthvað tengt þessu kerfi hlýtur að vera í bílnum. Ég fór því á google og fékk þar misvísandi upplýsingar. Ég er farinn að hallast að því þetta sé tengt ABS skynjurunum en svo eru aðrir sem vilja meina að það þurfi loftþrýstingsskynjara í felgurnar og eru jafnvel að selja slíka á 200$ settið. Ég á því miður ekki handbókina sem fylgdi með bílnum en ég endurstilli kerfið eftir viðgerðina samkvæmt upplýsingum frá Hr. Google. Veit einhver hvernig þessi kerfi virka nákvæmlega? |
Author: | thisman [ Wed 04. Jan 2012 10:26 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Ég er með svona kerfi í E92 sem virkar (vældi á mig í sumar þó svo að ég sæi ekkert að dekkjunum, hélt það væri bara einhver nemi að stríða mér - komst að því morguninn eftir að svo var ekki þegar allt hafði lekið öðru framdekkinu) þrátt fyrir að enginn skynjari sé í sjálfum felgunum. Dekkjaverkstæðið vildi meina að þetta tengdist einhverjum útreikningum á því að annað dekkið snérist örlítið hraðar þegar misræmi væri í þrýstingi - hvort það er rétt veit ég ekki en ég hef a.m.k. ekki getað fundið frekari upplýsingar um það. |
Author: | saemi [ Wed 04. Jan 2012 11:05 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Ég hef allavega séð svona skynjara í felgum. Kannski eru þetta 2 kerfi. Svo má líka vera að bíllinn sé með þessu kerfi en skipt hafi verið um felgur og þær ekki lengur með skynjurum, eða mögulega að bíllinn hafi ekki komið með skynjurum í felgum þó búnaðurinn sé til staðar í bílnum |
Author: | slapi [ Wed 04. Jan 2012 12:45 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Ameríkubílar eru með skynjara í dekkjunum, evrópubílar reikna þetta útur ABS |
Author: | Angelic0- [ Wed 04. Jan 2012 16:30 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Ég giska á að hans bíll sé EURO, þar sem að þessi villa kom upp þegar að dekkið fór að leka... Dekkin þurfa þá að vera með þeim þrýsting sem að er gefinn upp í hurðarstafnum og í réttum stærðum (ef að þetta er staggered setup, sem að ég efa) til þess að kerfið virki rétt... svo er kerfið sennilega endursett með því að halda takkanum inni... og þá þarftu að keyra smá spöl meðan að bíllinn er að reikna inn snúning á dekkjunum m.v. stöðu stýris og allt það... |
Author: | thisman [ Wed 04. Jan 2012 16:40 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Ég held þú getir basically verið með hvaða stærð/þrýsting sem er - maður núllstillir bara og ef eitt dekkjanna verður öðruvísi en við núllstillingu þá fer græjan að væla. En um leið og eitt dekk linast umfram hin þá byrja lætin. Hefur allavega verið mín reynsla, og hann er staggered hjá mér og ekki alltaf á original stærðum. |
Author: | gjonsson [ Wed 04. Jan 2012 17:26 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
Bíllinn er EURO svo það passar að þetta sé tengt ABS kerfinu. Ég er einnig að notast við OEM felgur en á örlítið stærri dekkjum. Þetta voru allt saman ameríkanar sem voru að selja loftþrýstingsskynjarana á netinu svo maður er amk komin með svör við þeirri spurningu. Samkvæmt því sem fann á google þá endurræsir maður kerfið með því að svissa á og halda takkanum inni. Þá logar ljósið í nokkrar sek og þegar það slokknar er bíllinn klár í calibration og það á að duga að keyra eðlilega um án þess að spóla og þess háttar. Þar sem að ABS mælir bara hraðann á dekkjunum þá ætti dekkjastærð og felgugerð ekki að skipta máli svo framarlega sem þau séu öll eins. Ég hef ekkert átt við þetta síðan ég keypti bílinn og mig grunar sterklega að fyrri eigandi hafi heldur ekki gert neitt þessi tengt. En núna er jafn loftþrýstingur í öllum dekkjum og kerfið hefur verið endurstillt. Vonandi er þetta farið að virka eðlilega. Það væri mjög kærkomið þar sem ekkert varadekk er um borð enda rúllaði apparatið á run flat dekkjum úr verksmiðjunni. |
Author: | Subbi [ Sun 08. Jan 2012 00:36 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
ABS og DSC fór út hjá mér við að minnkaði um 7 pund í einu dekkinu þeas tölvan fyrir ABS og DSC plöggaði út vegna mismunandi snúningshraða á milli afturdekkja og á stöðugum 110 km hraða sem ruglaði hana því bíllinn var ekki að spóla ![]() Hinsvegar ef skynjarar eru á enda innblástursrörs sem ventillinn fer í þá fer það ekki á milli mála ,,þeir eru á stærð við eldspýtustokk þessir skynjarar ,var með þetta í 19 tommuni hjá mér og tók þessa skynjara úr þeim |
Author: | crashed [ Sun 08. Jan 2012 02:49 ] |
Post subject: | Re: Loftþrýstingsskynjarar í felgum |
það er til þrjár gerðir að þessu 1. er abs útreikningar 2. er þráðlaus kubbur sem er í felguni 3. er þráðlaus kubbur sem er tengdur við loftpíluna í felguni, og getur hann verið inní felgu eða inbygður í loft ventlinum enn vandamálið eru blessuð dekjaverkstæðinn, þegar þeir takka dekkin af felgunum og gera það óvarlega eða vita ekki af þessu kerfi að þá tekst þeim ansi oft að skemma þennan búnað og eru ekki alltaf að láta vita af þessu, og svo nátúrulega þeir sem selja felgurnar og setja aðrar undir ánn þess að fatta að takka þennan búnað úr, veit að þegar ég keyfti dekk undir E36 sem ég átti að þá voru svona kubbar í öllum felgunum en eingin svona búnaður í bílnum |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |