bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

ljótur gangur fyrst eftir tímareimaskipti
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=54105
Page 1 of 1

Author:  íbbi_ [ Sun 27. Nov 2011 05:53 ]
Post subject:  ljótur gangur fyrst eftir tímareimaskipti

ég vona að það sleppi að ég hendi inn einni spurningu ótengdri bmw,

var að skipta um tímareim í nýlegum vw, setti bílin á merki á sveif/kamb og reyndar athugaði það sérstaklega eftir að reimin var kominn á að merkin hefðu haldist, þar sem að það vildi ske að maður færði sveifarástannhjólið örlítið af merkinu við að ná reimini almennilega upp á tímahjólið,

svo þegar ég var búinn að setja saman aftur og startaði, þá gékk bíllinn frekar illa hægagang og kveikti öll aðvörunarljós, check engine, airbag, asr og flr, lét hann ganga til að ná fullum hita og alltaf gékk hann eins, eins og hann væri rangur um eina tönn eða svo, kíkti á merkin aftur og gat ekki betur séð en að það væri ekkert athugavert þar. prufaði þá að keyra einn hring á bílnum og þegar ég kom til baka þá gékk bíllinn óaðfinnanlega og hefur gert síðan þá. og aðvörunarljósn byrjuðu að slökkna,

er þetta venjan með þessa bíla? mig var jafnvel að gruna að það hafi komið villukóðar þar sem ég þurfti að nota startarann til að losa rónna af dampernum

Author:  crashed [ Sun 27. Nov 2011 15:33 ]
Post subject:  Re: ljótur gangur fyrst eftir tímareimaskipti

ef tímareimin fór hjá þér þá getur þetta verið eðlilegt þar sem olía sullast á staði í mótornum sem hún á ekki að fara á og hann er að brenna henni og gegnur því ílla, frekar algengt í þeim bílum sem ég hef skyft um tímareim þar sem hún hefur slitnað

Author:  íbbi_ [ Sun 27. Nov 2011 15:49 ]
Post subject:  Re: ljótur gangur fyrst eftir tímareimaskipti

reimin fór ekki, heldur voru bara skipti í gangi

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/