Page 1 of 1

get ekki opnað skottið [e36]

PostPosted: Fri 18. Nov 2011 17:31
by Papa.V
er einhver sem gæti hugsanlega vitað hvað er að..
skottið er bara pikkfast, gerist ekkert þegar eg ýti takkanum inn

:? :? :?

Re: get ekki opnað skottið [e36]

PostPosted: Fri 18. Nov 2011 17:57
by gardara
Kemur takkinn aftur út eða situr hann bara fastur inni þegar þú ýtir honum inn?

Ef hann situr fastur inni þá er þetta líklegast plastið í kringum takkann sem er að angra þig, getur losað það burt.

Ef ekki þá er þetta eitthvað í læsingunni sjálfri og þá er best að skríða aftur í skott innanfrá og skoða læsinguna þar.

Re: get ekki opnað skottið [e36]

PostPosted: Fri 18. Nov 2011 23:11
by krayzie
armurinn sem stjórnar hvort hlerinn sé læstur eða aflæstur getur verið með leiðindi, getur þurft að skríða inní skott og taka klæðninguna burt þá sérðu vandamálið strax, lenti í þessu með gamla E36 sem ég átti.

Re: get ekki opnað skottið [e36]

PostPosted: Sat 19. Nov 2011 02:11
by IceDev
Gæti verið að þú sért að nota valet key, þeir opna ekki skottið á bílnum


Image