bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

stýrismaskína
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=53596
Page 1 of 1

Author:  íbbi_ [ Tue 25. Oct 2011 23:57 ]
Post subject:  stýrismaskína

er að velta fyrir mér varðandi stýrismaskínu í bíl hjá mér, þetta er complete maskína eins og er í flestum yngri bmw.

ég skipti um dælu/forðabúr/hosur, setti í gang og prufaði og allt var þetta afar smooth, svo set ég bílinn inn í geymslu, svo eflaust 2 vikum seinna þá lekur hann öllum stýrisvökvanum af sér

mig grunar strax að háþrýstislöngurnar hafi misst hersluna e-h álíka, en sé að svo er ekki og það hefur ekki dropið lekið frá dæluni, eða slöngunum v/maskínu, ég sé svo að hosa utan um stýrisendann út úr maskínuni er rifin og dropar þaðan, en manni finnst nú hálf ótrúlegt að það tæmist kerfið þaðan

engu síður er mín ágiskun að það sé farin pakkdósin í maskínuni, og hosan fylllst af vökva og gefið sig, og þess vegna ekki lekið af bílnum fyrr en 2 vikum eftir að honum var lagt,

er aðalega að fiska eftir hvort menn séu sammála þeirri kenningu eða ekki, svona áður en ég kippi maskínuni úr, sem er afar leiðinlegt

hann ætti ekki að æla af sér vökvanum þótt það sé loft á kerfinu?

Author:  Axel Jóhann [ Wed 26. Oct 2011 00:04 ]
Post subject:  Re: stýrismaskína

Neiii að öllu jöfnu á hann að haldast inná kerfinu, það hlýtur að vera farin pakkdós á henni hjá þér, það lýsir sér einmitt svona

Author:  ömmudriver [ Wed 26. Oct 2011 04:10 ]
Post subject:  Re: stýrismaskína

Þetta gerðist einmitt í blæjunni hjá mér.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/