Page 1 of 1

Vökvastýri í E21?

PostPosted: Mon 05. Apr 2004 18:11
by bebecar
Veit einhver hvort það er mikið mál að setja vökvastýri í E21?

Þetta var víst aukabúnaður á sínum tíma.

PostPosted: Mon 05. Apr 2004 18:44
by bjahja
Bíddu var vöðvastýrið ekki svo hardcore og alvöru ;)

PostPosted: Mon 05. Apr 2004 18:45
by bebecar
bjahja wrote:Bíddu var vöðvastýrið ekki svo hardcore og alvöru ;)


JÚ!!! 8) Þetta er ekki fyrir mig, heldur hugsanlegan kaupanda :wink:

vöðvastýri

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 05:04
by DXERON
Þú þarft nátturulega að skipta um stýrismaskínu, setja vökvadæluna utan á vélina og forðabúrið... annað er bara tengja slöngur og setja reimar...
'en mesti hausverkurinn er að fá vökvastýris maskínu...
þú ert með tannstangarstýri...
en e21 á að vera með vökvastýri bara möst.. það er alveg nógu hardcore vökvastýri á honum....

gangi þér vel með væntanlega kaupanda...

kveðja
Davíð Freyr

Re: vöðvastýri

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 08:57
by bebecar
DXERON wrote:Þú þarft nátturulega að skipta um stýrismaskínu, setja vökvadæluna utan á vélina og forðabúrið... annað er bara tengja slöngur og setja reimar...
'en mesti hausverkurinn er að fá vökvastýris maskínu...
þú ert með tannstangarstýri...
en e21 á að vera með vökvastýri bara möst.. það er alveg nógu hardcore vökvastýri á honum....

gangi þér vel með væntanlega kaupanda...

kveðja
Davíð Freyr


Takk - við sjáum nú til. Annar hvor bíllinn verður að fjúka, ég er aðeins spenntari fyrir 911 bílnum :lol:

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 10:06
by Logi
bebecar wrote:Annar hvor bíllinn verður að fjúka, ég er aðeins spenntari fyrir 911 bílnum :lol:

Skrítið :roll: Það er nú varla hægt að bera saman BMW 323i og Porsche 911 :lol:

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 10:12
by Alpina
Logi wrote:
bebecar wrote:Annar hvor bíllinn verður að fjúka, ég er aðeins spenntari fyrir 911 bílnum :lol:

Skrítið :roll: Það er nú varla hægt að bera saman BMW 323i og Porsche 911 :lol:


Get ekki verið meira sammála :?: :?: :idea: :idea:

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 10:37
by bebecar
Alpina wrote:
Logi wrote:
bebecar wrote:Annar hvor bíllinn verður að fjúka, ég er aðeins spenntari fyrir 911 bílnum :lol:

Skrítið :roll: Það er nú varla hægt að bera saman BMW 323i og Porsche 911 :lol:


Get ekki verið meira sammála :?: :?: :idea: :idea:


Það er líka eitt í þessu - nóg svigrúm til endurbóta á 911 bílnum - en þristurinn er nánast of góður til að hrófla við honum.

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 11:24
by Eggert
Hvernig er það bebe, fær maður ekki að sjá myndir af þessum Porsche hjá þér ?

Ég opna nú lítið á mér tjúllann á þessum forumum, en er svona búinn að fylgjast með 323 'Alpina' 8) projectinu hjá þér, er orðinn verulega forvitinn að fá að sjá þennan Porsche.

:wink:

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 11:39
by bebecar
Eggert wrote:Hvernig er það bebe, fær maður ekki að sjá myndir af þessum Porsche hjá þér ?

Ég opna nú lítið á mér tjúllann á þessum forumum, en er svona búinn að fylgjast með 323 'Alpina' 8) projectinu hjá þér, er orðinn verulega forvitinn að fá að sjá þennan Porsche.

:wink:


Alpina pælingar voru áður en ég keypti 911 bílinn - nú er allt í uppnámi :shock:

Ég er ekkert búin að gera fyrir E21 bíllinn - svona Alpinalega séð og á síður von á því núna eftir að ég komst yfir 911.

Hér eru myndir af 911 bílnum.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=1046&postdays=0&postorder=asc&start=45

PostPosted: Sat 10. Apr 2004 15:55
by Eggert
Hann er flottur, fluttiru hann inn sjálfur ? Ef svo er, leyfist mér að spyrja hversu miklu ca. þú þurftir að henda út fyrir gripinn ? Skil líka svosem vel ef þú vilt halda því fyrir þig.

Þetta er svona Porsche með sál, annað en þessir Boxterar sem maður sér af og til hérna í bænum :wink:

PostPosted: Wed 14. Apr 2004 18:37
by svennibmw
Það er alveg spes bracket sem þarf utan á blokkina fyrir dæluna og svo
eru þessar blessuðu maskínur alveg míglekar í nær öllum tilfellum og ekki hægt að fá neitt í þær bara hægt að fá uppgerðar frá germany, ég mæli með 35 pundum í dekk og stýrishjóli úr e28.....