bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Dagljósabúnaður á E36 compact 99 lengi í gang í kulda
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=53521
Page 1 of 1

Author:  IceDev [ Thu 20. Oct 2011 17:06 ]
Post subject:  Dagljósabúnaður á E36 compact 99 lengi í gang í kulda

Sælanú

Vandamálið er þannig að ég er með E36 compact 99 með dagljósabúnaði sem að vill láta bíða eftir sér. Þetta byrjaði fljótt eftir að það byrjaði að kólna að aðalljósin kikka ekki inn fyrr en eftir svona 10-15 mín af akstri.

Ég hef grun um að þetta sé einhversskonar relay eða eitthvað álíka smotterí en vildi endilega fá input frá einhverjum fróðleiksmeiri.

Author:  Axel Jóhann [ Fri 21. Oct 2011 00:52 ]
Post subject:  Re: Dagljósabúnaður á E36 compact 99 lengi í gang í kulda

Þetta er nú ekki alveg mitt sérsvið en ég stóð í þeirri meiningu að dagljósabúnaður væri þannig græjaður að ljósin væru tengd beint inná svisstraum og ættu því að kvikna um leið og þú svissar á bílinn,

miðað við þessa ímynd í hausnum á mér gæti þetta einfaldlega verið sambandsleysi.

Author:  HaffiG [ Fri 21. Oct 2011 11:00 ]
Post subject:  Re: Dagljósabúnaður á E36 compact 99 lengi í gang í kulda

Axel, aðalljós fara alltaf í gegnum relay.

Það getur vel verið að það hafi komist raki inn í relayið og skemmt það, svo nær það snertu þegar það hefur hitnað upp að vissu marki.
Prófaðu að skipta um relayið, eða bara skammhleypa framhjá því ef þú átt ekki til annað, bara til að prófa. Mig minnir að relayin séu í öryggjaboxinu v/m í húddinu.

Það eru alveg örugglega merkingar á relayinu sem segja þér hvaða 2 snertur þarf að skammhleypa til að athuga hvort það kveikni ljós.

Author:  IceDev [ Fri 21. Oct 2011 14:43 ]
Post subject:  Re: Dagljósabúnaður á E36 compact 99 lengi í gang í kulda

Vandamálið leyst. Relaysocketið? var ekki alveg 100% skorðað og því olli það sambandsleysi.

Gotta love a 3 minute fix.

Author:  HaffiG [ Fri 21. Oct 2011 18:57 ]
Post subject:  Re: Dagljósabúnaður á E36 compact 99 lengi í gang í kulda

:thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/