Page 1 of 1

Vesen á m20b25

PostPosted: Fri 23. Sep 2011 22:08
by odinn88
sælir kæru spjallverar

þannig er það ég er með e30 með m20 og var að spóla og leika mér á honum um daginn og hann drap á sér.
Ég prufaði að starta hann tók við sér en vildi ekki fara í gang.
Daginn eftir prufaði ég aftur þá fór hann í gang en komst ekki langt þangað til hann drap á sér aftur.
Núna þegar ég starta tekur hann ekkert við sér er bara stein dauður

eruð þið með einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að ?

Re: Vesen á m20b25

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 04:15
by Axel Jóhann
Ég á nýupptekinn mótor handa þér með túrbókerfi utan á. :thup: SPECIAL PRICE

:thup:

Re: Vesen á m20b25

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 11:52
by odinn88
haha já hversu special price :D

Re: Vesen á m20b25

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 11:55
by Einarsss
Var lítið bensín á honum þegar þú varst að spóla? Gæti trúað að bensíndælan hafi ekki fengið stöðugt flæði og bilað ef svo er.

Re: Vesen á m20b25

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 12:19
by odinn88
Einarsss wrote:Var lítið bensín á honum þegar þú varst að spóla? Gæti trúað að bensíndælan hafi ekki fengið stöðugt flæði og bilað ef svo er.


neibb það var meira en hálfur tankur á honum ég keipti splúnku nýja bensíndælu fyrir bíladaga í fyrra . . . en bensíndælan virkar alveg er búinn að prufa hana

Re: Vesen á m20b25

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 12:24
by Einarsss
þá er það bara testa hvort hann fái neista þegar þú ert að starta, ef hann er að fá neista þá gætu kertin verið blaut