bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E34 540i sprengingar - backfire https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=53060 |
Page 1 of 1 |
Author: | Danni [ Fri 23. Sep 2011 11:05 ] |
Post subject: | E34 540i sprengingar - backfire |
Ég hef tekið eftir þessu upp á síðkastið og í gær ákvað ég að taka smá test. Þegar bíllinn er búinn að vera á snúning í smá stud, t.d. bara að keyra með hann í ca 3000rpm, þá fara að koma svona backfire drunur úr pústinu þegar ég slæ af og síðan ef ég gef rólega inn aftur þá kemur sprenging í pústinu. Þetta er alveg voðalega flott og töff hljóð og allt það en einhvernveginn finnst mér eins og þetta sé eitthvað sem ég vil samt ekki heyra úr svona bíl, eins og að hann sé að fá of mikið bensín. Það er að vísu búið að taka hvarfakútana úr og setja fjórar túbur í staðinn, var þannig þegar ég fékk hann. Gæti það verið ástæðan? Er þetta eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af? |
Author: | gstuning [ Fri 23. Sep 2011 11:08 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
Hversu smooth er vélin þegar þú keyrir við 3000rpm? hljómar eins og bensín spíssi sé lekandi of miklu bensíni sem brennur svo ekki fyrr enn í pústinu eða slappt kerti sem gerir það að verkum að bensínið kemst í gegn enn brennir ekki fyrr enn í pústinu. kemur þetta ef þú ert t.d við 4k rpm og slærð alveg af og lætur vélin bremsa niður í 3k rpm? |
Author: | hauksi [ Fri 23. Sep 2011 11:25 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
Er ekki líklegra að annaðhvort sé leki á loftinntaki eða air flow sensorinn sé eitthvað bilaður. Án þess að hafa mikið vit á þessu en gerist þetta ekki þegar það fer meira loft inná vélina en bensín? Getur líka gerst ef það fer meira bensín en ætti hann þá ekki að sjá eldtungur útúr pústinu. Svo er líka spurning hvort þetta sé ekki að gerast útaf því að það er búið að taka hvarfakútana. |
Author: | Einsii [ Fri 23. Sep 2011 11:47 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
Ef þetta er útaf lélegu kerti þá myndi ég skoða ventlalokspakningar. Auðvelt að losa háspennukeflin ofan af kertunum og sjá hvort þar sé olía, þá er pottþétt þetta algenga ventlalokspanningar vandamál að skemma kertin. |
Author: | Danni [ Fri 23. Sep 2011 12:00 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
Gunni, ég þarf bara að athuga hvort þetta gerist ef ég læt vélina bremsa niður í 3k rpm úr 45. En annars gerði ég hljóðupptöku með símanum mínum í gær þar sem þetta heyrist í kringum 00:35-00:40 best: http://myndasafn.bmwkraftur.is/v/medlim ... e_amr.html Þetta er í .amr og ég gat spilað með real player. Síminn tekur ekki upp í MP3. Annars þarf ég greinilega að fara að kíkja á kertin og ventlaloks pakkningarnar og svona. Allar hosur eru í lagi svo hann virðist ekki vera að draga inn falskt loft. Spurning að kíkja með hann til Eðalbíla og láta tengja hann við tölvu til að athuga hvort einhverjir skynjarar eru að klikka, þó að það kemur ekkert check engine ljós. Ef allt virðist í lagi þá skrifa ég þetta bara á útfærsluna á pústinu. |
Author: | gstuning [ Fri 23. Sep 2011 12:06 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
Ástæðan fyrir að ég spyr um smoothness er hvort að það sé augljóslega eitt kefli, kerti eða álíka að valda þessu. Ástæðan fyrir að ég spyr um hvort þetta komi þegar er véla bremsað er til að sjá hvort að TPS sé í lagi og sé að cutta allt bensín eins og á að gera. Hversu lítið eða mikið ertu á gjöfinni þegar þetta gerist? |
Author: | Danni [ Fri 23. Sep 2011 12:20 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
Bíllinn er alltaf smooth, hef ekki tekið eftir neinu öðru. Vélin hikstar ekkert eða neitt þannig þegar þetta gerist. Þegar ég hugsa til baka þá hef ég bara tekið eftir þessu þegar ég er að keyra venjulega, en ég hef aldrei tekið eftir þessu þegar ég er að gefa hressilega í. Og ég þarf að kanna þetta með að láta hann bremsa sig niður til að geta svarað hvort spreningarnar koma þá. |
Author: | sosupabbi [ Fri 23. Sep 2011 15:02 ] |
Post subject: | Re: E34 540i sprengingar - backfire |
740i(M60B40) hjá mér var með opna endakúta og hann gerði þetta alltaf ef maður lét snúninginn droppa og gaf svo smá inn eftir 1000rpm fall ca, hann virkaði alltaf eðlilega og gekk alltaf smooth á öllum snúningum og lék ekki neinu svo ég hugsa að þetta sé vel eðlilegt miðað við mína reynslu (keyrði hann btw 40-50þ.km og þetta var alltaf svona). Miðað við hvað pústið hjá þér er svipað opið og var á mínum hugsa ég að það sé hugsanleg ástæða fyrir þessu án þess að leggja það sem var sagt á undan í efa. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |