Page 1 of 1

Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 12:46
by Shizzer
Sælir, er með eina spurningu sem einhver hérna getur vonandi svarað.

Er á E36 316i, 1995 árgerð, og hann er farinn að hegða sér frekar undarlega þegar ég tek af stað.

Semsagt þegar ég keyri af stað, og ýti niður bensíngjöfinni, þá eiginlega "hikstar" hann áfram, þeas. hann revvar upp og skýst áfram
og revvar aftur niður, svo revvar hann aftur aðeins hærra og skýst áfram.

Það er nokkurn veginn hægt að minnka þetta með kúplingunni en þetta er samt frekar fáránlegt.

Hann er líka rosa slappur í gang, þeas. hann snýst og snýst og rétt síðan nær að starta, svo rokkar hann aðeins niður og upp aftur í snúningum þangað til hann jafnar sig út.

Þetta gerist ekki þegar maður drepur á honum og kveikir aftur þegar hann er heitur.

Einhver með hugmynd um hvað málið gæti verið?

Re: Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Thu 22. Sep 2011 20:51
by BMW_Owner
vaccum leki, kerti léleg, kertaþræðir lélegir, kveikjulok slitið, ónýtur loftflæðiskynjari, stífluð bensínsía, þú kannt ekki að keyra :lol: það getur verið svo margt.

Re: Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Fri 23. Sep 2011 15:03
by sosupabbi
BMW_Owner wrote:vaccum leki, kerti léleg, kertaþræðir lélegir, kveikjulok slitið, ónýtur loftflæðiskynjari, stífluð bensínsía, þú kannt ekki að keyra :lol: það getur verið svo margt.

Hann kann alveg að keyra þessi :lol: :lol: , kíktu bara á mig eftir helgi, skal kíkja á þetta með þér.

Re: Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Fri 23. Sep 2011 20:51
by eiddz
Ætla að gíska á að það sé gat á hosunni frá throttle body að loftsíu.

Re: Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Sat 24. Sep 2011 20:48
by Shizzer
sosupabbi wrote:
BMW_Owner wrote:vaccum leki, kerti léleg, kertaþræðir lélegir, kveikjulok slitið, ónýtur loftflæðiskynjari, stífluð bensínsía, þú kannt ekki að keyra :lol: það getur verið svo margt.

Hann kann alveg að keyra þessi :lol: :lol: , kíktu bara á mig eftir helgi, skal kíkja á þetta með þér.


Ég bjalla á þig á mánudaginn!

Re: Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Mon 26. Sep 2011 23:27
by ellipjakkur
eiddz wrote:Ætla að gíska á að það sé gat á hosunni frá throttle body að loftsíu.



grunar að þetta sé rétt,, lenti i sama veseni á e36 318 '96 þá var nánast ómögulegt að keyra í 1 gír

Re: Hikst í E36 í fyrsta gír.

PostPosted: Wed 05. Oct 2011 10:11
by agustingig
Eða maf,, Það var þannig í 318i hjá félaga mínum. Þá hikstaði hann feitt í fyrsta gír, varð góður þegar við tokum hann úr sambandi.