bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

ABS & spólvörn ?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=5291
Page 1 of 1

Author:  ramrecon [ Wed 31. Mar 2004 12:19 ]
Post subject:  ABS & spólvörn ?

Já núna hef ég rekið mig í eitthvað vandamál að ég held.. sko þannig er málið að þegar ég fer út í bíl t.d. og set hann í gang og byrja að keyra eitthvað áfram þá kemur það fyrir stundum (alveg uppúr þurru) að spólvarnar ljósið og ABS ljósið og upphrópunarmerki með hring utanum (svipað handbremsu ljósi) þá kveiknar á þessum 3 ljósum í mælaborði og það er alveg þangað til að ég drep á bílnum, síðan næst þá kemur það ekki. Á meðan þessi ljós eru í mælaborðinu get ég spólað eins og vitleysingur og abs aftengt og svona, ég hef farið með bílinn í svona rafmagns test uppí B&L og þeir sögðu að þetta gæti verið einn af 2 rofum fyrir ofan fótstigs bremsuna einhverjir rofar þar, ég veit ekki en gæti þetta verið eitthvað stórt vandamál því þetta poppar upp alltíeinu bara í venjulegum akstri t.d.
Kannast einhver við svona :?: :?:

ps. Ég var líka að velta fyrir mér HVAR tekur maður ABS úr sambandi og spólvörnina ? eru einhverjir takkar eða eitthvað sem maður kippir úr sambandi, ekki hika við að commenta. :(

Þetta er e39 540 '99 árg.

Author:  Haffi [ Wed 31. Mar 2004 12:25 ]
Post subject: 

það er bara svona öryggis hnulli... ég tók það úr sambandi á veturna :roll:

Author:  ramrecon [ Wed 31. Mar 2004 12:47 ]
Post subject: 

Haffi wrote:
það er bara svona öryggis hnulli... ég tók það úr sambandi á veturna :roll:

Meinarru þá þarna öryggin sem eru í hanskahólfinu ? ég hef nefnilega kíkt þangað og þar sá ég slatta af þeim og listi með yfir hvaða öryggi var hvað o.s.f. ?

Author:  Haffi [ Wed 31. Mar 2004 12:56 ]
Post subject: 

Nei undir húddinu... í öryggjaboxiu þar... stóð meira að segja ABS á honum =)

En bíðum eftir svari frá FRÓÐARI mönnum um þessi mál 8)

Author:  hlynurst [ Wed 31. Mar 2004 13:02 ]
Post subject: 

Það er takki í bílnum mínum sem stendur á ASC+T... leiktakkinn minn! :lol:

Author:  poco [ Wed 31. Mar 2004 13:58 ]
Post subject: 

Ég er á E39 523 '97. Þar er líka takki ASC+T. Press on, press off,press on, press off.

Author:  SER [ Wed 31. Mar 2004 14:11 ]
Post subject: 

Foreldrar mínir eiga 2000 árgerð að 540 og þar er takki neðarlega í miðjustokknum hjá glasahöldunum sem stendur á DSC og þar er hægt að aftengja spólvörnina og skrikvörnina, sá bíll er útbúinn með DSC+T. Það þarf að halda takkanum aðeins inni til að aftengja allt saman. Ég veit ekki til þess að það sé hægt að aftengja ABS-ið með takka.

Author:  Alpina [ Wed 31. Mar 2004 19:30 ]
Post subject:  Re: ABS & spólvörn ?

ramrecon wrote:
Já núna hef ég rekið mig í eitthvað vandamál að ég held.. sko þannig er málið að þegar ég fer út í bíl t.d. og set hann í gang og byrja að keyra eitthvað áfram þá kemur það fyrir stundum (alveg uppúr þurru) að spólvarnar ljósið og ABS ljósið og upphrópunarmerki með hring utanum (svipað handbremsu ljósi) þá kveiknar á þessum 3 ljósum í mælaborði og það er alveg þangað til að ég drep á bílnum, síðan næst þá kemur það ekki. Á meðan þessi ljós eru í mælaborðinu get ég spólað eins og vitleysingur og abs aftengt og svona, ég hef farið með bílinn í svona rafmagns test uppí B&L og þeir sögðu að þetta gæti verið einn af 2 rofum fyrir ofan fótstigs bremsuna einhverjir rofar þar, ég veit ekki en gæti þetta verið eitthvað stórt vandamál því þetta poppar upp alltíeinu bara í venjulegum akstri t.d.
Kannast einhver við svona :?:

ps. Ég var líka að velta fyrir mér HVAR tekur maður ABS úr sambandi og spólvörnina ? eru einhverjir takkar eða eitthvað sem maður kippir úr sambandi, ekki hika við að commenta. :(

Þetta er e39 540 '99 árg.


Álit B&L er eitthvað sem þú ættir að taka mark á :? :?

Author:  ramrecon [ Wed 31. Mar 2004 21:58 ]
Post subject:  jörðin ?

Sko núna dettur mér í hug svolítið sem ég lenti í fyrir nokkru, þannig var það að ég átti VW Golf '98 og ég fékk mér alpine græjur í hann og svona mánuði eftir að ég fékk þær þá fór útvarpið að vera soldið skrítið og það datt út við og við og svona bölvuð leiðindi, þ.e.a.s. slökkti bara á sér samt blikkaði ljós á því og svona, voða skrítið fannst mér. Einmitt þá var jörðin ekki nóg og vel tengd í tækið það var ástæðan fyrir þessum rafmagns truflunum.
Núna rakst ég á í bílnum að sólskygnið sem er í aftari rúðunni hún vill stundum ekki koma upp en síðan eftir smá tíma af takkaýti og endurræsi á vélinni og svona þá poppar það alltíeinu inn og er í lagi heillengi.... og sama er að segja um með ABS og spólvörnina og þessi ljós sem koma ALLTÍEINU inn bara svona uppúr þurru, gæti verið að rafmagnið séi ekki nóg og vel tengt í jörð einhverstaðar að þetta gæti skeð ? t.d. í sviss eða stýrinu (ég er nú bara svona að brainstorma) endilega leiðréttið ef ykkur finnst þetta fáránlegt :) afsakið fáfræðina í mér :oops:

Author:  Alpina [ Thu 01. Apr 2004 19:51 ]
Post subject: 

Mér líður þannig að þetta sé vont!!!

Author:  benzboy [ Thu 01. Apr 2004 21:38 ]
Post subject:  Re: ABS & spólvörn ?

ramrecon wrote:
Já núna hef ég rekið mig í eitthvað vandamál að ég held.. sko þannig er málið að þegar ég fer út í bíl t.d. og set hann í gang og byrja að keyra eitthvað áfram þá kemur það fyrir stundum (alveg uppúr þurru) að spólvarnar ljósið og ABS ljósið og upphrópunarmerki með hring utanum (svipað handbremsu ljósi) þá kveiknar á þessum 3 ljósum í mælaborði og það er alveg þangað til að ég drep á bílnum, síðan næst þá kemur það ekki. Á meðan þessi ljós eru í mælaborðinu get ég spólað eins og vitleysingur og abs aftengt og svona, ég hef farið með bílinn í svona rafmagns test uppí B&L og þeir sögðu að þetta gæti verið einn af 2 rofum fyrir ofan fótstigs bremsuna einhverjir rofar þar, ég veit ekki en gæti þetta verið eitthvað stórt vandamál því þetta poppar upp alltíeinu bara í venjulegum akstri t.d.
Kannast einhver við svona :?: :?:

ps. Ég var líka að velta fyrir mér HVAR tekur maður ABS úr sambandi og spólvörnina ? eru einhverjir takkar eða eitthvað sem maður kippir úr sambandi, ekki hika við að commenta. :(

Þetta er e39 540 '99 árg.


Sammála Alpina en þessi lýsing passar vel við bilaðan sensor - myndi allavega gera það í Benz

Author:  Jss [ Thu 01. Apr 2004 23:40 ]
Post subject: 

Ég myndi hlusta á þá á verkstæðinu, þeir vita sínu viti, og það er ekkert lítið sem þeir vita um þessa bíla. ;)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/