bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Samspil dekkjastærða
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=52391
Page 1 of 1

Author:  Manace [ Thu 11. Aug 2011 19:52 ]
Post subject:  Samspil dekkjastærða

Sælir spjallverjar.

Ég þarf að endurnýja afturdekkin mín og hef spurningu fyrir ykkur.

Ég er á 8,5" breiðum 18" felgum og er með 235/45 að framan.
Mér buðust 255/40 og ætlaði að slá til en það gekk síðan ekki.
Núna er viðkomandi að bjóða mér 255/35 og á góða verðinu.

Það sem ég er að pæla, er hvernig þetta spilar saman?
Hefur þetta einhver áhrif á aksturseiginleikana?

Góð svör vel þegin! :)

Author:  sh4rk [ Thu 11. Aug 2011 20:19 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

Eru þetta 17" felgur eða stærra?

Author:  Manace [ Thu 11. Aug 2011 20:36 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

Kannski gott að taka það fram... haha

Þetta eru 18" felgur.

Author:  sh4rk [ Thu 11. Aug 2011 20:44 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

ok overall diameter af 235/45R18 dekkjunum er 26,3". 255/40R18 er með 26" í overall diameter og 255/35R18 er með 25"
Best væri fyrir þig að fara í 265/40R18 því að overall diameter er 26,3"

Author:  Alpina [ Thu 11. Aug 2011 20:57 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

sh4rk wrote:
ok overall diameter af 235/45R18 dekkjunum er 26,3". 255/40R18 er með 26" í overall diameter og 255/35R18 er með 25"
Best væri fyrir þig að fara í 265/40R18 því að overall diameter er 26,3"

265/35 er oem stærð frá BMW að aftan frá BMW á 9x18 og 235/45 á 8x18.......... á E39 t.d.

Author:  Manace [ Thu 11. Aug 2011 20:58 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

Það verður nú að segjast að það sé útí hött að vera með minna diameter að aftan ekki satt?
En það er líka fáránlegt að vera með breiðara að framan...

Myndi ég finna mikið fyrir þessu ef ég slæ bara til og læt þetta að aftan?

Author:  sh4rk [ Thu 11. Aug 2011 21:15 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

ef það er mikið minna að aftan til dæmis þá gæti það ruglað talninguna á abs skynjurunum en ég veit ekki með þessar stærðir en ég held að það verði kjánalegt svona mikill munur á fram og aftur dekkjum, en ég reyni nú alltaf að vera með sama overall diameter hjá mér

Author:  GriZZliE [ Thu 11. Aug 2011 22:37 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

Getur fundið goðar samstæður a dekkjum, eg var að runna hja mer 245/45r17 og 275/40r17 er i sama profill. Ef þu ert með 3cm breiðara eða mjorra þa gerir það sama profil a dekkinu ss. 235/45r17 og 265/40r17 +5% eða -5% i profil og alveg ohað tommum var mikið að skoða þetta a sinum tima uppa að vera með svipaðan profil allan hringinn uppa abs og þesshattar öryggisbunað.

Vona að þetta hjalpi þer eitthvað. :wink:

Author:  iar [ Thu 11. Aug 2011 22:37 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

sh4rk wrote:
ef það er mikið minna að aftan til dæmis þá gæti það ruglað talninguna á abs skynjurunum

Þetta er góður punktur. Ég lenti í því á E36 þegar ég var með minni (lægri) dekk að aftan að geta ekki keyrt nema með slökkt á spólvörninni því hún fór alltaf í gang þegar ég fór yfir ca. 30km/klst :-) Bíllinn hélt líklega að hann væri að spóla þegar afturdekkinn fóru að snúast X mikið meira en framdekkinn. :-)

Stærðinar þá voru minnir mig 195/55R15 að aftan og líklega 205/55R16 að framan. Það er alveg slatta munur á því..

Hérna er ágætis reiknivél til að bera saman mismunandi dekkjastærðir: http://www.carbibles.com/tyre_bible_pg4 ... calculator

Author:  JonHrafn [ Fri 12. Aug 2011 07:13 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

iar wrote:

skv þessari reiknivél munar 22millimetrum á ummálinu hjá mér, að aftan og framan. Spólvarnarljósi blikkar á mig í nokkrar sek einu sinni á mánuði eða svo, þannig að það þarf ekki mikið til.

Author:  Axel Jóhann [ Fri 12. Aug 2011 12:48 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

Manace wrote:
Sælir spjallverjar.

Ég þarf að endurnýja afturdekkin mín og hef spurningu fyrir ykkur.

Ég er á 8,5" breiðum 18" felgum og er með 235/45 að framan.
Mér buðust 255/40 og ætlaði að slá til en það gekk síðan ekki.
Núna er viðkomandi að bjóða mér 255/35 og á góða verðinu.

Það sem ég er að pæla, er hvernig þetta spilar saman?
Hefur þetta einhver áhrif á aksturseiginleikana?

Góð svör vel þegin! :)

Sælir, hversu góður díll á 255/35 dekkjum? :mrgreen:

Author:  Manace [ Fri 12. Aug 2011 22:43 ]
Post subject:  Re: Samspil dekkjastærða

30 kall fyrir 2 ný Dunlop dekk.

Ef þetta væri ekki svona góður prís væri ég ekki að skoða þetta svona grant. :mrgreen:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/