Heilsprautun sýnist mér kosta á bilinu 300-500 þúsund krónur.
Ef maður hefur góða aðstöðu, ætti maður þá ekki allavega að pæla í því að gera þetta sjálfur. Kaupa eða leigja græjurnar sem til þarf. Ef maður kaupir þá á maður græjurnar (loftpressuna hægt að nota í margt annað) og gæti því sprautað hvenær sem er ef eitthvað kemur uppá eða ef maður er ekki alveg ánægður.
Fyrir 300 þúsund kall er hægt að fá ágæta loftpressu, sprautugræjur og fleira
Já og mér datt þetta í hug vegna þess að ég hef séð á netinu að mjög margir sprauta bílana sína sjálfir, og hafa meira segja fengið verðlaun fyrir "concourse" bíla þrátt fyrir það.


